Nokkur kurr er innan hug- og félagsvísindaviðs Háskólans á Akureyri eftir að rektor frestaði ráðningu nýs sviðsforseta. Ólína Þorvarðardóttir varð hlutskörpust í kosningu kennara um hver skyldi fá starfið. Var þess vænst að hún yrði skipuð í starfið í síðustu viku en rektor upplýsti þá í kjölfar fundar með Háskólaráði að skoða þyrfti mál betur áður en tekin yrði ákvörðun um ráðningu.
Í bréfi sem rektor sendi starfsmönnum segir að háskólinn muni leita aðstoðar ráðningarstofu um að afla frekari upplýsinga varðandi hæfni umsækjendanna fjögurra til að gegna starfinu. Þetta vekur athygli sumra kennara, því áður hafði verið skorið úr um hæfi og reyndust umsækjendur allir hæfir og jafnir. Háskólaráð hefur fengið dómnefndarálit og umsögn fræðasviðsins en í bréfi rektors segir: „Niðurstöður atkvæðagreiðslna á hug- og félagsvísindasviði gefa ekki fullnægjandi vísbendingu um hver er raunveruleg afstaða meirihluta starfsmanna á sviðinu. “Þetta telja sumir viðmælenda blaðsins einkennilega framvindu í ljósi kosningar sem sýndi þann vilja að Ólína nyti mestra vinsælda, þótt sigur Ólínu hafi verið naumur. Staðan er sögð viðkvæm og vill enginn starfsmanna sem blaðið ræddi við koma fram undir nafni.
Í bréfi rektors er sérstaklega tekið fram að málinu sé ekki lokið. Háskólaráð muni koma aftur saman 30. september og í framhaldi af því megi reikna með að endanleg ákvörðun um ráðningu liggi fyrir.
Áður hefur Ólína lýst í fjölmiðlum óánægju með málavöxtu. En í samtali við Akureyri vikublað sagði hún þetta: „Þær athugasemdir sem ég kann að hafa við málsmeðferðina mun ég kynna rektor og háskólaráði, en tjái mig ekki við fjölmiðla að svo stöddu. Ég treysti því að yfirstjórn skólans víki ekki af vegi góðrar stjórnsýslu í þessu máli heldur komist að málefnalegri og réttri niðurstöðu.”
Ef Ólína verður ekki skipuð fá að líkindum annað hvort Sigrún Stefánsdóttir fyrrum dagskrárstjóri Rúv eða Rögnvaldur Ingþórsson heimspekingur. stöðuna Öll þrjú, Ólína, Sigrún og Rögnvaldur, hafa lokið doktorsprófi.
-BÞ

