„Það er mjög ánægjulegt að foreldrar og Skólanefnd Eyjafjarðarsveitar gangi fram með svo sköruglegum hætti, enda er þetta mikið hagsmunamál fyrir skólabörnin,“ segir Ársæll Arnarsson, prófessor í sálfræði við Háskólann á Akureyri sem jafnframt hefur unnið síðustu ár við rannsóknina „Heilsa og lífskjör skólabarna“.
Eins og Akureyri vikublað greindi frá í síðustu viku hafa verið harðar deilur um breytingu á skólaakstri barna í Eyjafjarðarsveit. Samakstur grunnskólabarna og framhaldsskólanema hefur leitt til þess að þau börn sem fara lengstan veg þurfa að vakna upp úr klukkan sex á morgnana til að ná skólabílnum. Skólanefnd hefur látið bóka harðorð mótmæli og ekki að ósekju að mati dr. Ársæls, því börn sem hefji daginn klukkan sex, séu svo í skólanum allan daginn og stundi kannski tónlistarnám, íþróttir og aðrar tómstundir, vinni augljóslega alltof langan dag. „Ég er ekki viss um að allir fullorðnir myndu láta bjóða sér slíkt úthald.“
Mælt með tíu tímum
Hann segir eflaust misjafnt milli barna hversu langan svefn þau þurfi, en yfirleitt sé mælt með tíu klukkustundum fyrir börn á skólaaldri og níu fyrir unglinga. „Þetta þýðir að unglingur í Eyjafjarðar þyrfti að fara að sofa ekki seinna en klukkan níu á kvöldin til að ná fullum svefni. Það myndi flestum unglingum sem ég þekki þykja frekar fúlt.“
Hann segir vansvefta börn einfaldlega ekki fá það sama út úr kennsludeginum og önnur börn. „Þau halda verr einbeitingu í bekknum, þeim gengur verr að leysa verkefni og muna síður námsefnið. Þessi börn sýna frekar af sér truflandi hegðun og eru pirraðri og hvatvísari. Stór rannsókn sýndi til að mynda að skólabörn sem sváfu skemur en níu klukkustundir voru allt að fimm sinnum líklegri til að þróa með sér vandamál tengd einbeitingu og hegðun. Þá hefur fjöldi rannsókna sýnt sterk tengsl svefnleysis við ofþyngd meðal barna, en börn sem sofa minna en tíu tíma á sólarhring eru tvöfalt líklegri til að eiga við þyngdarvandamál að stríða.“
„Skólanefnd er sammála um að skora á sveitarstjórn að draga þessa ákvörðun um breytta tilhögun skólaaksturs til baka,“ sagði m.a. í bókun skólanefndar.
-BÞ
