Óvissa ríkir um hvort menningarþátturinn Víðsjá á Rás 1 treystir sér kostnaðarlega til að halda úti gagnrýni um leiksýningar Leikfélags Akureyrar í vetur. Verið er að vinna í málinu og segist Ragnheiður Skúladóttir bjartsýn á lausn. Hún hefur fengið þau svör að varla fáist fjárheimild innan Rúv til að senda þann starfsmanna norður sem séð hefur um gagnrýni hinna atvinnuleikhúsanna í höfuðborginni en leikhússtjóri hefur stungið upp á að listgagnrýnendur fyrir norðan fái umboð hjá Víðsjá til að fjalla um leikhúsið fyrir Víðsjá.
„Mér finnst það standa upp á Rúv sem gefur sig út fyrir að vera útvarp allra landsmanna að það sé hlutverk Ríkisútvarpsins að fjalla með jafnræði að leiðarljósi um allar listir og menningu á landsvísu, það er blússandi atvinnustarfsemi í listum utan höfuðborgarsvæðisins og margt fólk sem hefur atvinnu af listum og menningu út um alt land. Mér finnst sjálfsagt að það sé fjallað af sömu natni og innsæi um það starf eins og á stór-Reykjavíkursvæðinu, segir Ragnheiður Skúladóttir leikhússtjóri LA.
Ragnheiður segist þakklát fyrir heimsóknir Djöflaeyjunnar norður til Akureyrar vegna listalífs Leikfélags Akureyrar. Hún hafi fengið staðfest að sjónvarpshlutinn verði áfram á sínum stað í vetur. Hins vegar telji hún eftirtektarvert að það sé ekki eins og að það sé órofa hluti af strúktúr Rúv að sinna menningu og listum út um allt land heldur kunni það að velta á geðþótta eða áhuga tiltekinna starfsmanna stofnunarinnar.
Með nýja sýn á ójafnræði
Ragnheiður hafði ekki starfað úti á landi áður en hún fluttist til Akureyrar vegna leikhússtjórastöðunnar . Hún segist nú veita ójafnræði landsbyggðanna eftirtekt gagnvart höfuðborgarsvæðinu en það hafi hún ekki gert áður. „Þetta ætti að vera sjálfsagður hlutur, því það er eitt af því sem heldur okkur saman sem einni þjóð að við séum upplýst um það menningarstarf sem í boði er, óháð búsetu.“ Leikhússtjóri LA telur einnig almennt gilda um fjölmiðla að æskilegt væri að þeir myndu auka umfjöllun um menningu og listir og héldu úti heildstæðri umfjöllun á árgrundvelli fremur en að einskorða sig við viðburði. Hún fái það oft á tilfinninguna að þegar hún kynni störf að fjölmiðlar líti þannig á að um „bögg eða plögg“ sé aðallega að ræða.
Fá þriðjng skatttekna frá landsbyggðunum
Blaðið bar þessa menningarlegu óvissustöðu og hugsanlegan skort á jafnræði borgara eftir búsetu undir stjórnarformann Byggðastofnunar, dr. Þórodd Bjarnason. „Þetta kemur því miður ekki á óvart. Almennt séð virðast stjórnendur Rúv líta svo á að umfjöllun um staðbundna atburði í landsbyggðunum verði að eiga erindi til íbúa höfuðborgarsvæðisins. Hins vegar þurfi umfjöllun um staðbundna atburði á höfuðborgarsvæðið ekki að hafa skírskotun út fyrir Elliðaárnar,“ segir Þóroddur.
Hann segir að ástandið hafi stundum verið kallað „landavæðing Rúv“ eftir mannlífssjónvarpsþættinum sem tekinn var upp þegar svæðisbundnar útsendingar voru lagðar af. „Auðvitað skiptir fagleg gagnrýni miklu máli fyrir leikhúslíf um allt land og landsmiðlarnir allir sinna því ágætlega í Reykjavík. Það er afar slæmt að atvinnuleikhús á Akureyri skuli ekki sitja við sama borð í því tilliti og dapurlegt að Rúv sem fær þriðjung skatttekna sinna frá landsbyggðunum skuli ekki hafa meiri metnað til þess að sinna menningarlegu hlutverki sínu utan Reykjavíkur.“
Segir Rúv jafnan bregðast ókvæða við
Gagnrýni á jafnræði er ekki ný af nálinni og telur stjórnarformaður Byggðastofnunar brýnt að nálgast mál með nýjum hætti. „Það er hins vegar svo að stjórnendur Rúv bregðast yfirleitt ókvæða við gagnrýni á það hvernig stofnunin rækir samfélagslegt hlutverk sitt og því lítil von til þess að hér verði breyting á. Það gæti verið tímabært að hætta að binda vonir við Rúv í þessu sambandi og leita frekar nýrra leiða til að styrkja staðarmiðlana til að rækta almannarýmið vítt og breitt um landið,“ segir stjórnarformaður Byggðastofnunar.
Þorgerður E. Sigurðardóttir sem sinnt hefur leiklistargagnrýni fyrir Víðsjá staðfesti óvissu í málinu en sagði að lausna væri leitað, öðrum spurningum blaðsins, hvorki um jafnræði né annað, gæti hún ekki svarað á þessum tímapunkti.
-BÞ
