Hópur íbúa á Akureyri berst fyrir uppsetningu útibekkja við aðalstoppistöðina í miðbænum - auk þess sem þar þyrfti að vera tvöfalt útiskýli að sögn Mörthu E. Laxdal, íbúa á Akureyri. Hún segist nýfarin að nota strætó á Akureyri og furði sig á hvers vegna búnaðurinn sé ekki til staðar. „Ég hef imprað á þessu við vagnstjórana og þeir eru sammála mér í því að auðvitað ættu að vera bekkir úti við sjoppuna sem fólk gæti nýtt sér.“
Martha segir að gera ætti notendum strætó kleift að sitja úti á meðan beðið er, þegar veðrið er þokkalegt - njóta dagsbirtunnar og „taka inn” umhverfið svo ekki sé talað um eldra fólkið sem þurfi að hvíla lúin bein oftar en aðrir.
„Það væri kjörið að hafa eins og þrjá heilsárs útibekki þarna við stoppistöðina - og fyrir veturinn verður nú að vera a.m.k. eitt gott útiskýli. Sjoppan er ekki skemmtilegasti staðurinn að bíða á a.m.k. á meðan veðrið er þokkalegt) þar sem stólarnir eru af skornum skammti og margir þeirra eru brotnir, svo er því miður mjög skítugt þarna inni yfirleitt - þó afgreiðslufólkið sé nú alltaf indælt.“
Ekki náðist í talsmenn SVA til að bera hugmyndina upp.
-BÞ
