Leikmenn ógni fótboltanum með veðmálum og siðleysi

Þór Akureyri

Vísbendingar eru um að sumir leikmanna Íþróttafélagsins Þórs á Akureyri hafi í leik gegn Dalvík á dögunum veðjað á leik sem þeir sjálfir tóku þátt í 13. janúar sl. Um ræðir leik í svokölluðu Kjarnafæðismóti þar sem Þór lagði Dalvík að velli, 7-0. Til skoðunar er hvort sumir leikmanna Þórs hafi veðjað á erlendri vefsíðu á eigin sigur og lagt aukalega undir ef 3ja marka sigur eða stærri næðist. Hermt er að með því hafi þeir sem mest lögðu undir grætt 100.000 til 150.000 á úrslitunum.

Veðmál eru almennt bönnuð á Íslandi. Í gegnum erlendar vefsíður svo sem bet365.com og betsson.com hefur það færst í vöxt að áhugamenn um fótbolta sjái hagnaðarvon í því að veðja á úrslit. Pétur Heiðar Kristjánsson sem þjálfar meistaraflokk Dalvíkinga í fótbolta segir að ef leikmenn Þórs hafi veðjað á eigin leik fordæmi hann slíkt. Ekki væri þó um einangrað athæfi að ræða í íslenskum knattspyrnuheimi. Enn verra væri ef leikmenn veðjuðu gegn sjálfum sér og töpuðu leik vísvitandi til að græða pening. Breiðablik láti leikmenn skrifa undir samning þar sem þeir heiti því að veðja ekki á leiki sem tengist þeim sjálfum. Hins vegar sé erfitt að koma slíku við hjá félagi eins og Dalvík sem geri ekki samninga við leikmenn. Þótt svo væri yrði ekki allur vandi leystur, því hægt sé að veðja í gegnum nöfn annarra. Fyrst og síðast verði veðmál því siðleg spurning. Ekki verði séð að lagalega sé hægt að tryggja að menn misnoti ekki aðstöðu sína.

Pétur Heiðar segir að veðmál í fótboltanum séu orðin mjög algeng hér á landi, t.d. sjáist fjöldi áhorfenda á knattspyrnuleikjum með síma sína á lofti, oft veðjandi á úrslit. „Fótboltinn á ekki að snúast um þetta,“ segir Pétur Heiðar.

Páll Viðar Gíslason, þjálfari meistaraflokks hjá Þór, segist ekki hafa fengið staðfest að einhverjir leikmenn liðsins hafi veðjað á eigin leik en brugðist verði við orðróminum. Hann vill ítreka að svona framkoma væri ekki aðeins siðlaus heldur ólögleg.
Þjálfari Þórs segir ekki útilokað að Þór muni falast eftir svipuðum samningum við leikmenn og Breiðablik hafi gert, að leikmenn meistaraflokks skulbindi sig til að veðja ekki á það sem þeir geta haft áhrif á. Viðurlög við broti gætu numið sekt, leikbanni eða jafnvel riftun samnings eða banni.

„Mesti glæpurinn er náttúrlega ef veðmálin hafa bein áhrif á gagn leiksins og úrslit. Það má ekki gerast að fótboltinn fari að snúast um eitthvað svona rugl,“ segir Páll Viðar, þjálfari Þórs.

-BÞ

Get Adobe Flash player

Beðið eftir presti

Átta hafa sótt um embætti prests í Glerárprestakalli, Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi. Embættið veitist frá 1. september 2014. Þetta kemur fram ... Lesa »

Miðnæturfjör í kvöld

Í dag, föstudaginn 13. júní, verða verslanir í miðbænum opnar til miðnættis. Sömuleiðis taka kaffihús, ferðaskrifstofur, veitingahús og ... Lesa »

Brautskráning á nýjum stað

Á morgun, laugardaginn 14. júní kl. 11:00, fer fram brautskráning frá Háskólanum á Akureyri. Athöfnin hefur hingað til farið fram í Íþróttahöllinni en ... Lesa »

Konur eru konum bestar

Á morgun, laugardaginn 14. júní, fer fram hið árlega Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ. Hlaupið verður á 85 stöðum um land allt. Undanfarin ár hafa þátttakendur í ... Lesa »

Atvinnumál, nýsköpun og frumkvöðlar

Þann 11. júní síðastliðinn var lögð fram tillaga um ráðningu nýs verkefnisstjóra atvinnumála á Akureyrarstofu. Umsækjendur voru í upphafi 44 og að ... Lesa »

Bíladagar 2014

  Bíladagar hefjast í dag og standa yfir til 17. júní. Þeir eru nú haldnir í 18. sinn og hafa fest sig í sessi sem norðlenskur ... Lesa »

Hvað gerist á sjúkrahúsinu?

Sjúkrahúsið á Akureyri hefur nú birt myndband þar sem starfsmenn þess segja frá starfsstéttum sínum, námi og daglegum verkefnum innan stofnunarinnar. ... Lesa »

Ertu rasisti?

Þegar stórt er spurt. En þannig spurði fréttamaður framhaldsskólakennara á Akureyri í útvarpsviðtali vegna þess að kennarinn taldi það ráðlegast að ... Lesa »

Veislan hafin

Þá er komið að því, HM í knattspyrnu hefst í kvöld. Atburður sem okkur hefur verið talin trú um að allir hafi beðið eftir. Gallinn er bara sá að ... Lesa »

Safnabókin 2014 komin út

Í Safnabókinni má finna upplýsingar um meira en 160 söfn, setur, sýningar, þjóðgarða og kirkjur um allt land. Á undanförnum árum hefur verið mikil ... Lesa »

Gleðispillirinn FIFA

Það skemmtilegasta sem ég hef nokkurn tíma gert er að spila fótbolta. Engin íþrótt nartar í hælana á fótbolta þegar kemur að skemmtigildi og ... Lesa »

Akureyri rokkar í júlí

Meðlimir samtakanna Stelpur rokka! munu leggja leið sína norður í næsta mánuði og bjóða ungum stúlkum á aldrinum 12-16 ára að taka þátt í ... Lesa »

Dúllulegt í Hrísey

„Hugmyndin varð til í marsmánuði og var markmiðið að gleðja Hríseyinga í dapurleikanum sem ríkti þá í eynni,“ segir Svanhildur Daníelsdóttir, ... Lesa »

Fjórða útskrift Háskólabrúar

Keilir útskrifaði nítján manns af Háskólabrú í staðnámi á Akureyri 5. júní síðastliðinn. Athöfnin fór fram í Samkomuhúsinu. Boðið hefur verið upp á ... Lesa »

Close
Please support the site
Fylgstu með okkur á facebook líka!