Fréttasíðan í Þingeyjarsýslum, 641.is, greinir frá því í dag að bíll frá Google, sem búinn var fullkomnum myndavélum í tengslum við Google Street view verkefnið hafi verið gripnir glóðvolgir við Lauga í Reykjadal.
Sl. sumar keyrðu bílar Google um allt þéttbýli í þeim tilgangi að mynda það. Þeir hafa þó ekki áttað sig á því að sumarið áður hafði Vegagerðin sett upp mælitæki sem sýndi hámarkshraða ökumanna rétt við norðurjaðar þéttbýlisins. Þeir hafa því keyrt 19 km yfir löglegum hámarkshraða á vegkaflanum.
Lögreglan á Akureyri sagði að þessi hraði myndi skila sér í 15.000 króna sekt. „Reyndar er hæpið að sekta svona eftirá og ekki hægt, mælitækið er ekki löggilt til þess að sekta með því. En við viljum svo sannarlega biðla til Google, að næst þegar þeir koma til landsins skuli þeir aka á löglegum hraða“
-SA

