Umræða um hlutverk fyrirtækja og stofnana hefur sjaldan verið eins mikil í löndum hins vestræna heims og undanfarin ár. Krafa um að fyrirtæki starfi í sátt við umhverfi og náttúru, virði mannréttindi, og láti sig velferð þeirra samfélaga sem þau eru hluti af, varða, verður sífellt háværari. Að sama skapi hefur krafa um gagnsæi upplýsinga og heiðarlega viðskiptahætti aukist. Neytendur velja t.d. í auknum mæli vörur þar sem uppruna er getið, fremur en að horfa eingöngu á verðið.
Að vinna eftir hugmyndafræði samfélagslegrar ábyrgðar er leið til þess að auka á gagnsæi í virðiskeðjunni og heiðarleika í viðskiptum. Samfélagsábyrgð snýst nefnilega ekki eingöngu um góðgerðarstarfsemi, hún er heldur ekki tæki til þess að vera með einhverja sýndarmennsku útá við, þ.e. tæki til bættrar ímyndar og ásjónu, ef ekki er næg innistæða fyrir því. Sú skilgreining sem menn hafa náð sátt um og kemur frá Evrópusambandinu er eftirfarandi: „Samfélagsleg ábyrg fyrirtæki vinna að eigin frumkvæði að eflingu samfélagsins, samþætta samfélags- og umhverfismál starfsemi sinni og hafa þau sjónarmið að leiðarljósi í samskiptum við hagsmunaaðila“. Markmiðið er að gera meira en lög og reglur segja til um, og gera það að eigin frumkvæði. Vitundarvakning hefur einnig átt sér stað meðal íslenskra fyrirtækja og stofnana um mikilvægi þess að vera samfélagslega ábyrg.
Næstkomandi mánudag kl. 10.30-12.30 verður haldið málþing á vegum viðskiptadeildar Háskólans á Akureyri, sem ber yfirskriftina „Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja, ávinningur og áskoranir“. Markmiðið með málþinginu er að örva umræðuna á Norðurlandi, um mikilvægi samfélagsábyrgðar meðal nemenda, forsvarsmanna fyrirtækja og stofnana og bæjarbúa. Málþingið er styrkt af Landsbankanum, sem er stofnaðili Festu, þekkingarmiðstöðvar um samfélagsábyrgð. Á málþinginu gefst kostur á að heyra um stöðu mála á Íslandi, en það er inntak erindis frá Þorsteini Kára Jónssyni, verkefnisstjóra hjá Festu. Við heyrum einnig tvær dæmisögur. Hrefna Thoroddsen útskýrir í sínu erindi, þá leið sem Össur fer í að axla samfélagsábyrgð og Hulda Hreiðarsdóttir veitir innsýn í sitt fyrirtæki, Fafuplay, en það er stofnað á grundvelli sanngjarnra viðskipta (fairtrade).
Að loknum erindum er boðið uppá umræður og bætast við í pallborðið Guðmundur Heiðar Frímannsson, prófessor við kennaradeild HA, og Júlía Sjörup Eiríksdóttir, nemandi á 3. ári við viðskiptadeildina. Að umræðum loknum er boðið uppá léttar veitingar. Við hlökkum til að sjá ykkur í Háskólanum á Akureyri, taka þátt í umræðunni um samfélagsábyrgð.
Hafdís Björg Hjálmarsdóttir, Lektor viðskiptadeild HA

