Litla ljóðahátíðin sem siglt hefur undir merkjum Eyjafjarðar síðustu fjögur ár hefur nú tekið á sig rögg og breiðir boðskapinn út um landið. Hátíðin í ár fer fram á sama tíma á Egilsstöðum og Akureyri og er orðið að stærðarinnar samvinnuverkefni austan- og norðanmanna. Hátíðin, sem hingað til hefur eingöngu verið haldin á Akureyri, fer nú í fyrsta skipti fram á Héraði og eru heimamenn að sögn geysispenntir fyrir uppátækinu og keppast um að tryggja sér sæti í tíma á fremstu bekkjum.
Á hátíðinni í ár koma fram skáldin Sigurbjörg Þrastardóttir, Sjón, Einar Már Guðmundsson, Ingunn Snædal, Sigurður Ingólfsson, Kristín Laufey Jónsdóttir og Gréta Kristín Ómarsdóttir.
Hátíðin hefst á ljóðagöngu í Hallormsstaðarskógi fimmtudaginn 19. september kl. 20 þar sem ljóðahópurinn Hási Kisi sér um dagskrá fyrir gesti og umfram allt gangandi. Föstudagskvöldið 20. september verður svo upplestur í Sláturhúsinu á Egilsstöðum kl. 20 þar sem fram koma Sigurbjörg Þrastardóttir, Sjón, Einar Már Guðmundsson, Ingunn Snædal og Kristín Laufey Jónsdóttir.
Daginn eftir fer hersingin til Akureyrar með viðkomu á Möðrudal á Fjöllum þar sem fer fram sérstök minningarstund um Kristján fjallaskáld.
Laugardagsíðdegið 21. september kl. 17 fer fram upplestur í Populus Tremula. Fram koma Sigurbjörg Þrastardóttir, Sjón, Einar Már Guðmundsson, Sigurður Ingólfsson og Gréta Kristín Ómarsdóttir. Hátíðinni lýkur svo með ljóðagöngu í Kjarnaskógi kl. 14 þar sem Aðalsteinn Svanur Sigfúrsson stýrir dagskrá.
Ljóðaunnendur á Norður- og Austurlandi eiga því von á góðu í ár. Enda ekki á hverjum degi sem Litl ljóða hámerin og Hási Kisi leiða saman hesta sín og bjóða til hátíðar.
Þessi árvissa ljóðahátíð er nú haldin í fimmta skipti en mörg af fremstu skáldum landsins hafa komið fram á hátíðinni undanfarin ár. Hátíðin býður sem endranær upp á upplestur fyrir áhugasama Eyfirðinga – og nú einnig Héraðsbúa - og ljóðakvöld sem sýna þverskurð af fjölbreyttum kveðskap samtímaskálda.
-BÞ
