Amma Stella borin til grafar í dag

Amma Stella

Stella Stefánsdóttir sem ótrúlega hátt hlutfall Akureyringa þekkir betur undir nafninu Amma Stella verður jarðsungin við Akureyrarkirkju í dag en hún lést á Landspítalanum 27. janúar sl. Stella átti fleiri afkomendur á lífi en nokkur annar íslendingur en lifandi afkomendur hennar teljast 190; 14 börn, 52 barnabörn, 107 langömmubörn og 17 langalangömmubörn.

Stella bjó lengst af í Gilinu, Lækjargötu 22a, með manni sínum Gunnari Konráðssyni, eða afa Nunna. Hún starfaði sem vökukona við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri frá 1956 og sjúkraliði á árunum 1967-90. Einnig var Stella virk í félagsmálum og starfaði með kvenfélaginu Hlíf, Mæðrastyrksnefnd og sat um skeið í stjórn Sjúkraliðafélagsins á Akureyri.

Þrátt fyrir fjölda afkomenda hélt Stella góðum tengslum við þá. „Engin afmælisdagur er fullkomnaður fyrr en Amma Stella hefur hringt og sungið afmælissönginn (hún hringdi meira að segja einu sinni í skakkt númer en þá vildi svo skemmtilega til að alls ókunnug konan sem svaraði átti einmitt afmæli),“ sagði einn afkomandi Stellu í umfjöllun um hana nýlega.

Oddur Helgi Halldórsson

Bænum er vel stjórnað

Frá því L-listinn náði meirihluta árið 2010 hefur margt batnað hér í bæ. Við höfum komið verkefnum af stað og klárað. Verkefnum sem lengi höfðu verið ... Lesa »

Hlynur sýnir á Siglufirði

Hlynur Hallsson opnar sýninguna „Alþýðusýning í Alþýðuhúsinu“ á Siglufirði laugardaginn 8. mars kl. 14-17. Hlynur sýnir nokkur alþýðleg spreyverk ... Lesa »

Sjósund í djúpum skít?!

Niðurstöður úr sjósýnatökum meðfram strandlengjunni á Akureyri þann 21.janúar sl. sýna að magn saurkólíbaktería er yfir viðmiðunarmörkum á flestum ... Lesa »

Unglingarnir okkar bera af

Mjög lítil kannabisnotkun er meðal barna í 10. bekk á Akureyri. Drykkja ungmenna er lítil og fleiri stelpur drekka ekki en áður. Jafnmargar stelpur og ... Lesa »

Ólafsstofa á huldu

Þann 1. mars 2013, á málþingi um Ólaf Jóhannesson sem haldið var af Framsóknarflokknum tilkynnti Ágúst Þór Árnason, þáverandi deildarformaður ... Lesa »

Stofa til heiðurs fyrrum formanni framsóknar við HA

„Þau ánægjulegu tíðindi áttu sér stað að Ágúst Þór Árnason, deildarformaður lagadeildar Háskólans á Akureyri, tilkynnti formlega á málþinginu að sett ... Lesa »

Björn Þorláksson

Hvers konar rök eru þetta?

Í tilkynningu sem fjölmiðlum barst frá Vegagerðinni 26. febrúar síðastliðinn sagði að fækka yrði snjómokstursdögum á Möðrudalsöræfum „í bili“ og vegum ... Lesa »

KEA hótel eignast hótelbygginguna

KHG European Hospitality Partners, í eigu Valdimars Jónssonar, sonar Jóns Ragnarssonar, upphafsmanns hótelrekstrar á Skútustöðum, hefur framselt KEA ... Lesa »

Opinn borgarafundur SÁÁ í Hofi

SÁÁ, samtök áhugafólksum áfengisfíkn, efnir til opins borgarafundar um áfengis- og vímuefnavandann í Menningarhúsinu Hofi, í kvöld, miðvikudaginn 5. ... Lesa »

HA og AkureyrarAkademían í samstarf

Háskólinn á Akureyri og AkureyrarAkademían skrifuðu í gær undir samstarfssamning til næstu þriggja ára. Markmið samningsins er að efla samstarf og ... Lesa »

Konur fleiri en karlar í Fjallabyggð

Hagstofan hefur gefið út tölur um íbúa sveitarfélaga árið 2014. Þar kemur fram að Akureyringum fjölgar um 137 frá árinu 2013. Íbúum Eyjfjarðar fjölgar ... Lesa »

Sjálfstæðisflokkurinn

Sjálfstæðisflokkurinn samþykkir framboðslista

Sjálfstæðisflokkurinn hefur samþykkt tillögu kjörnefndar um framboðslista til sveitarstjórnarkosninganna í maí. Eins og áður hefur komið fram er ... Lesa »

Fékk að vita af fyrirhuguðum styrkveitingum á fundi með framsóknarmönnum

Fjarðabyggð fékk þrjá styrki frá forsætisráðuneytinu í tengslum við varðveislu menningarminja. Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar ... Lesa »

Margrét Kristín leiðir lista BF á Akureyri

Björt framtíð hefur gefið út hverjir skipa efstu þrjú sætin á framboðslistanum til sveitarstjórnarkosninga í vor. Fundur Bjartrar framtíðar stendur nú ... Lesa »