Píratar læra af mistökum sínum

Píratar læra af mistökum sínum

Aðalheiður Ámundadóttir

Við Píratar störfum eftir Píratakóða sem við höfum til hliðsjónar í starfi okkar og hinu daglega Píratalífi. Í Píratakóðanum kemur meðal annars fram að Píratar eru gagnrýnir. Það gildir bæði útávið og innávið. Við erum gagnrýnin á samfélagið og skeytum ekki um pólitíska rétthugsun. Við hlýðum ekki í blindni. Við erum líka gagnrýnin á okkur sjálf og viljum læra af mistökum okkar.

Gerðum við Píratar mistök?
Eitt af sérkennum Pírata er áhersla á beint lýðræði og opin vinnubrögð. Frambjóðendur flokksins voru valdir í þessum anda. Prófkjör Pírata fór þannig fram að allir gátu skráð sig sem frambjóðendur á kosningakerfi Pírata á x.piratar.is. Skráðir meðlimir flokksins röðuðu síðan frambjóðendum í forgangsröð með svipuðum hætti og gert var í kosningum til Stjórnlagaráðs.

Við Píratar viljum varðveita lýðræðisást okkar. Við viljum áfram gefa öllum tækifæri til þátttöku, enda eru það mannréttindi að taka þátt í stjórnmálastarfi og gefa kost á sér til starfa fyrir land og þjóð. Það er ekki í anda okkar hugsjóna að kanna með kerfisbundnum hætti fortíð þeirra sem vilja gefa kost á sér til starfa fyrir Pírata. Við viljum ekki setja upp girðingar sem geta fælt frá okkur gott fólk, jafnvel þótt það eigi fortíð, því mörg okkar læra dýrmæta lexíu í gegnum erfiða reynslu og feilspor í lífinu og verðum betri manneskjur fyrir vikið. Þá er mikilvægt að fá annað tækifæri. En svo eru auðvitað líka þeir sem aldrei taka sönsum. Píratar vilja láta félagsmönnum sínum eftir að ákveða hverjum þeir treysta til að taka sæti á framboðslistum. Því fylgir ábyrgð sem hvert og eitt okkar verður að axla og við höfum mikið lært undanfarna sólarhringa.

Áhrif umræðunnar á framboðið
Mun umræðan undanfarna sólarhringa hafa áhrif á framboð Pírata? Því get ég ekki svarað fyrr en eftir lokun kjörstaða á kjördag. Hafi traust til mín og annarra Píratakapteina beðið slíka hnekki, að ekkert okkar nær kjöri, mun það vissulega hafa áhrif á framgang okkar helstu hugsjónamála og það yrði mér og okkur öllum mjög þungbært. Við njótum nokkurar sérstöðu þegar kemur að stefnumálum og því ólíklegt að helstu hugsjónamál okkar komist á dagskrá nema okkar sjálfra njóti við.

Píratar eru ekki sérlega valdasækið fólk. Við bjóðum ekki fram til höfuðs öðrum stjórnmálaflokkum og við viljum starfa með öllum sem eru reiðubúnir að hlusta á okkar sjónarmið. Við viljum vinna með fólki en ekki á móti því. Það er okkur í rauninni ekki sérstakt kappsmál að komast í ríkisstjórn. Við viljum aðeins að rödd okkar fái að heyrast.

Af hverju erum við að þessu?
Píratar hafa siðferðilegt hugrekki til að ræða opinskátt um mál sem brenna á mörgum undir niðri en komast sjaldan upp á yfirborðið; viðkvæm mál. Þeir sem búa, eða hafa alist upp í litlum plássum á landsbyggðinni kannast margir við þá tilfinningu að veigra sér við að viðra ‘rangar’ skoðanir. Umhverfissinnar í stóriðjuplássi eiga undir högg að sækja og velja oft þögnina frekar af ótta við atvinnumissi, fordæmingu eða jafnvel útskúfun úr samfélagi sínu. Mér virðast til dæmis fáir frambjóðendur þora að taka harða afstöðu gegn stóriðju ef þeir eru í framboði í kjördæmum þar sem stóriðja er á dagskrá, jafnvel þótt þeir séu í framboði fyrir yfirlýstan umhverfisverndarflokk.

Ég er sjálf alin upp í sjávarplássi og veit hve erfitt það getur verið að synda á móti straumnum með ‚rangar‘ skoðanir. Píratar hika hins vegar ekki við að synda á móti straumnum ef þeir trúa á málstað sinn. Við þorum að vera andvíg stóriðju, líka þar sem það er óvinsælt. Við viljum ræða opinskátt um fátækt á Íslandi, vandamál sem hefur að miklu leyti fallið í skuggann af alvarlegum fjárhagsvanda millistéttarinnar. Við viljum ræða af mannúð um aðstæður fíkla á Íslandi og teljum að heilbrigðiskerfið sé betur fallið en refsivörslukerfið til að takast á við fíkniefnavanda þeirra. Nei, Píratar eru ekki bara internetflokkur, Þótt við höfum vissulega marga tækni- og internetnörda innanborðs og séum partur af alþjóðlegri hreyfingu sem spratt uppúr upplýsingabyltingunni, þá brenna líka mörg annarskonar mál á okkur. Ég vona að storminn fari að lægja og við fáum tækifæri til að kynna þau betur.

Aðalheiður Ámundadóttir
Höfundur leiðir lista Pírata í NA-kjördæmi

Hvað er svona hræðilegt við femínista?

Nú ætla ég að fara að röfla. Það er svo gaman. Því að ég er femínisti. Ég hirði ekkert um útlitið heldur nöldra endalaust vegna þess að ég er bitur. Ég vil skemma alla stemmingu ... Lesa »

Búið að opna stórahring í Dimmuborgum

Nú er búið að opna Stórahring í Dimmuborgum. Stórihringur er hringleið sem tekur 20-30 mínútur að ganga og liggur meðal annars að Gatkletti. Á vef Umhverfisstofnunar kemur fram að ... Lesa »

Viðurkenningar fyrir æskulýðs- og tómstundastarf veittar í fyrsta skiptið

Í síðustu viku afhenti samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar viðurkenningar fyrir starf á sviði æskulýðsstarfs og tómstunda. Veittar voru fimm viðurkenningar, þrjár til ... Lesa »

Sumarleikhús í undirbúningi

Nú er hafinn undirbúningur Skapandi sumarstarfa sem er verkefni rekið af Akureyrarbæ og miðar að því að gera ungu fólki á Akureyri kleyft að starfa við skapandi og skemmtileg störf í ... Lesa »

Sögulegt haglél meiddi fólk á Akureyri

Haglél af stærri gerðinni féll á Akureyri fyrir stundu. Reyndar segja íbúar á Brekkunni að þeir minnist þess ekki að hafa séð eins stór högl falla á þessu svæði. Dæmi voru um að ... Lesa »

Gengur á með hagléljum á Akureyri

  Vorið lætur víst enn bíða eftir sér en mörgum Akureyringum þótti nóg um þegar högl fóru að hrynja af himnum ofan um þrjúleytið. ... Lesa »

Skemmdarverk unnin á bíl í miðbæ Akureyrar

Aðfararnótt sunnudagsins 19. maí sl. milli kl. 01:45 og 03:30 stóð vínrauð Toyota Avensis bifreið á Geislagötu við pósthúsið. Þegar eigandinn kom að bílnum sá hann að búið var að ... Lesa »

Frímúrarabarn

Það er til rosa vondur brandari sem fjallar um Liverpoolaðdáendur og börn alkóhólista, ef fólk er ekki þegar farið að tengja þá er hann s.s. svona „hvað eiga Liverpoolaðdáendur og ... Lesa »

Framúrskarandi ungur Norðlendingur verðlaunaður

Hið nýstofnaða félag JCI Norðurland stóð nýverið fyrir leitinni að Framúrskarandi ungum Norðlendingi 2013. Viðurkenningin var veitt laugardaginn 18. maí síðastliðinn í ... Lesa »

Norðurorka styður Iðnaðarsafnið

Norðurorka gerði sl. föstudag samstarfssamning við Iðnaðarsafnið á Akureyri en í honum felst að Norðurorka er bakhjarl safnsins. „Lögð er áhersla á að þeir fjármunir sem lagðir ... Lesa »

Stelpur rokka! á Akureyri

Dagana 10. til 14. júlí halda Stelpur rokka! rokksumarbúðir fyrir 12 til 16 ára stelpur. Þetta er í fyrsta skiptið sem rokksumarbúðirnar eru haldnar á Akureyri en það er gert í ... Lesa »

Sumartónleikar Þórs

Sumartónleikar Íþróttafélasins Þórs verða haldnir sunnudaginn 2. júní klukkan 20 í Glerárkirkju. „Það verður notaleg stemmning í Glerárkirkju þegar ljúfir tónar frá ... Lesa »

Arnar Már Arngrímsson

Hugsað að morgni í maí

Ég er að hugsa um veturinn sem er að líða og af hverju, af hverju veturinn kýli mann alltaf kaldan. Hvað varð um gönguskíðaferðirnar, spilakvöldin, arineldinn og það allt? Vetur er bara ... Lesa »

Söngvari og sellóleikari

Anna K. Larson og Sanna Andersson eru æskuvinkonur frá litlu þorpi í suður Svíþjóð. Þær mynda dúettinn "söngvari og sellóleikari" og hafa sett saman dagskrá þar sem þær blanda saman ... Lesa »

Bridsarar búa sig undir Færeyjaferð

Mikill fjöldi bridgespilara af öllu landinu lagði leið sína til Akureyrar um síðustu helgi en þá fór fram kjördæma­ mótið í bridge. Reykvíkingar höfðu sigur, Suðurland varð í ... Lesa »

Jökull Guðmundsson

Hvað tók Jóhanna frá öldruðum?

„Ekkert smá sem ríkisstjórnin er búin að reyta af öldruðum og öryrkjum á kjörtímabilinu“. Þessi fullyrðing heyrðist oft dagana fyrir kosningar, en væri spurt hvað aldraðir hefðu ... Lesa »

Fleiri konur útskrifast úr Sjúkraflutningaskólanum

Í gær, föstudaginn 17. maí fór útskrift nemenda Sjúkraflutningaskólans fram við hátíðlega athöfn á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Að þessu sinni útskrifuðust 72 nemendur þar af 58 ... Lesa »

Sumaráætlun Strætó fyrir landsbyggðina

Sumaráætlun Strætó fyrir landsbyggðina tekur gildi á morgun, sunnudaginn 19. maí 2013 og gildir til 14. september 2013. Eftirfarandi breytingar verða á ferðum á Norðurlandi: Leið 57 ... Lesa »

Vanillukaka með töfrum

Þessi kaka er ótrúlega einföld og fljótleg. Hún er langbest þegar hún er köld og hægt að bera hana fram með berjum og ávöxtum, þeyttum rjóma eða vanillukremi eða heitri ... Lesa »

Skemmti- og hreinsunarganga hundaeigenda

Félag hundaeigenda á Akureyri efnir til hundagöngu mánudaginn 20. maí, annan í Hvítasunnu. Gangan verður skemmti- og hreinsunarganga og tilgangurinn er að hundaeigendur gangi saman með ... Lesa »

10 sýningar opna í Safnasafninu í dag

Í dag, laugardaginn 18. maí er alþjóðlegi safnadagurinn og af því tilefni verða opnaðar 10 nýjar sýningar í Safnasafninu á Svalbarðsströnd. Sýningarnar fjalla annars vegar um ... Lesa »

Geir Kristinn Aðalsteinsson

Um jafnrétti L-listans

Í síðustu viku sá samfylkingarmaðurinn Þorlákur Axel Jónsson ástæðu til að skrifa grein í Akureyri Vikublað um jafnrétti L-listans og vitnaði þar til meistaraflokks kvenna í ... Lesa »

Stigablað úrslitakvölds Eurovison

Hér er komið þriðja og síðasta stigablað Elínar Estherar fyrir Eurovision 2013. Hér má m.a. gefa Dans-dans-dans-stig, Stílista-stig, Horfðu til himins-stig, Brjálaðar bumbur-stig, Læk ... Lesa »

Barnageðlæknafélag Íslands skorar á FSA að leysa vanda

Stjórn Barnageðlæknafélags Íslands lýsir yfir áhyggjum af stöðu og þróun geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og unglinga á Akureyri ásamt Norður- og Austurlandi. Þetta kemur fram í ... Lesa »

Tímans hjól tifar fyrir fullu húsi á Sauðárkróki

Leikritið Tifar tímans hjól sem Leikfélag Sauðárkróks frumsýndi í lok apríl hefur notið mikilla vinsælda og uppselt hefur verið á allar sýningar. Nú hefur verið bætt við tveimur ... Lesa »

Skoða meira