Hvernig ertu af geðhvarfasýkinni?

Hvernig ertu af geðhvarfasýkinni?
Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Eftir að pabbi var orðinn veikur af heilabilun fórum við fjölskyldan eitt sinn með honum á kaffihús í Reykjavík enda var sælkerinn seint frá honum tekinn þó minni og tjáning og hreyfigeta væru ekki eins og best verður á kosið.Pabba fannst alltaf svo gott að borða góðar tertur og drekka lútsterkt kaffi og ekki þótti honum síðra að njóta slíkra lystisemda með nánustu fjölskyldu, fólkinu sem elskaði hann bara fyrir það eitt að vera til. Þá sat hann þögull og hlustaði á skvaldrið í okkur og kímdi þegar hlátrasköllinn og vitleysisgangurinn var kominn yfir „eðlileg“ mörk, hann þekkti sitt fólk af andrúmsloftinu þó nöfnin væru farin að skolast til. Óöryggi er eitt af einkennum þessa sjúkdóms sérstaklega á fyrstu stigum þegar sjúklingurinn áttar sig enn á ástandi sínu, þá skiptir mjög miklu máli hvernig honum er mætt. Verst er að láta hann geta í eyðurnar og spyrja hvort hann þekki ekki örugglega þann sem heilsar, betra er að kynna sig strax og ganga ekki út frá því sem gefnu að sjúklingurinn þekki náungann. Það er eiginlega fátt verra en að núa sjúklingnum því um nasir að hann sé farin að gleyma og tapa áttum. Oftast gerir fólk þetta ómeðvitað og ætlar sér auðvitað ekkert illt. Sumir velja síðan að ávarpa hinn veika bara alls ekki neitt og beina öllum spurningum til aðstandenda, tala um hinn veika í þriðju persónu en af tvennu illu er það nú sennilega verra. En aftur að kaffihúsaferðinni þegar við gengum inn á kaffihúsið þennan dag mættum við kunningja okkar og pabba sem hefur lengi glímt við geðhvarfasýki, hann gekk á móti okkur tók utan um pabba og sagði „sæll Bolli minn, gott að sjá þig, hvernig ertu af heilabiluninni?“ Það er ekki oft sem slær þögn á okkur systkinin en það gerðist þó á þessari stundu, við horfðum á mennina tvo til skiptis og biðum eftir viðbrögðum föður okkar sem hafði nú frekar tilhneigingu til að verða óöruggur þegar fólki utan fjölskyldunnar ávarpaði hann í veikindum hans. En þarna gerðist eitthvað nýtt, um leið og maðurinn hafði varpað fram spurningunni var eins og pabbi slakaði á og allt í einu voru þessir tveir menn farnir að ræða heilabilun og geðhvarfasýki eins og íslenska veðráttu eða verðbólgu eða eitthvað sem getur verið mjög hvimleitt en maður neyðist til að sætta sig við. Svo tók kunningin að segja pabba frá ógleymanlega klaufalegum athugasemdum og ráðleggingum og viðbrögðum fólks sem hann hefði mætt og meðtekið í gegnum árin, rétt eins og veikindi hans væru komin frá plánetunni Mars og enginn gæti talað við þessa grænu geimveru. Ég gleymi aldrei þessari stund vegna þess að þarna skildi ég betur það sem Jesús gerði þegar hann mætti veiku fólki, hann ávarpaði sjúkdóma eins og þeir væru sjálfstæður veruleiki eða óþolandi boðflennur í góðu partýi og þetta gerði líka maðurinn sem við mættum þennan dag. Þegar við ávörpum sjúkdóma erum við um leið að undirstrika að hinn veiki beri ekki ábyrgð á því að vera veikur, þegar við hvíslum í kringum sjúkdóma eða hreinlega þegjum, þá ýtum við undir skömm þess veika og ómeðvitað fyllum við hann sektarkennd yfir ástandi sínu, það er það versta sem veik manneskja getur upplifað. Það er í grunninn það sem kemur í veg fyrir að fólk með andlega sjúkdóma leiti sér hjálpar og læri að lifa með sjúkdómi sínum sem er svo sannarlega hægt rétt eins með önnur veikindi. Nú stendur yfir átakið „Á allra vörum“ og í ár beinir það sjónum sínum að geðheilbrigðismálum, í ár er safnað fyrir nýrri geðgjörgæsludeild á Landsspítalanum, þessi pistill er skrifaður til heiðurs þessu frábæra framtaki. Takk fyrir það.

Dag einn munum við svo kannski mæta hvert öðru á götu og spyrja, „ hvernig ertu af gigtinni gamla“? „bara svona ágæt“ „ en segðu mér hvernig ert þú af geðhvarfasýkinni“?

Hildur Eir Bolladóttir

Söng- og sögukvöld í Húna

Í kvöld, mánudagskvölið 25. nóvember kl. 20, verður haldið sérstakt söng- og sögukvöld um borð í Húna II við Torfunefsbryggju. Kristján Pétur Sigurðsson tónlistamaður og lífskúnstner skemmtir en ... Lesa »

Ljósaganga 16 daga átaks gegn ofbeldi

Í dag, mánudaginn 25. nóvember, kl. 17:00 verður farin ljósaganga frá Akureyrarkirkju að Ráðhústorgi. Gangan er í tilefni 16 daga átaks gegn ofbeldi og eru foreldrar hvattir til að mæta ásamt börnum ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Engan hrísvönd þessi jól

Jólin nálgast og grýla er ekki dauð líkt og fimm ára sonur minn heldur staðfastlega fram í fyrirvaraleysi æsku sinnar. Við fullorðna fólkið höfum nefnilega mörg hver haldið henni á lífi með óþarfa ... Lesa »

16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi

Alþjóðlegt átak gegn kynbundnu ofbeldi er nú haldið í 23 sinn. Átakið stendur í 16 daga frá mánudeginum 25. nóvember sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum og til 10. desember en það ... Lesa »

“Heima er hundurinn frakkastur”

Í svargrein Sigurðar Guðmundssonar bissnessmanns og bæjarfulltrúa á Akureyri sem birtist í síðasta tbl. Í Akureyri vikublaði er hann á einhverjum villigötum, því grein mín var aðallega um spillingu ... Lesa »

Samræmd könnunarpróf

Árið 1929 hófu samræmdu prófin göngu sína á Íslandi og hafa verið í gangi síðan. Upphaflega var einungis könnuð geta nemenda í 10.bekk og þá ekki í 4.- og 7.bekk eins og hefur verið gert frá árinu ... Lesa »

Drengurinn sem aldrei var til, súrrealísk hinseginsaga

Sjón hefur nýjustu skáldsögu sína, Mánastein, að öllum líkindum eins groddalega og hægt er. Í það minnsta fyrir verk sem hlýtur að kallast ljóðrænt, sem kastar þannig böndum á lesandann og dáleiðir. ... Lesa »

Ylfa selur jólakort

Lionsklúbburinn Ylfa Akureyri var stofnaður árið 2011 og er einn fjögurra Lionsklúbba á Akureyri. Í honum starfa 24 konur. Klúbburinn hefur nú hafið sölu á jólakortum til styrktar líknarsjóði ... Lesa »

Hornsílaveiðar í Eyjafjarðará

Fyrir nokkrum árum var ég staddur í ljóðagöngu í Kristnesskógi og spurður hvort mér hefði ekki fundist yndislegt að alast upp við Kristnes. Ég gat ekki svarað spurningunni enda hafði ég ekki leitt ... Lesa »

Heimsþekkt sálmaskáld heimsækir Akureyri 1862

Akureyringar minntust þess sumarið 2012 að 150 ár voru liðin frá því að bærinn fékk kaupstaðarréttindi. Sjálfsagt hafa Akureyringar fagnað kaupstaðarréttindunum þann 29. ágúst árið 1862 þó lítið hafi ... Lesa »

Sigurvegarar Grenndargralsins 2013

Bergvin Leif Garðarsson og Patrik Orri Jóhannsson úr 9. bekk í Giljaskóla eru sigurvegarar í Leitinni að Grenndargralinu árið 2013. Leitinni lauk föstudaginn 15. nóvember. Dagurinn hófst á því að ... Lesa »

Hluti kennara í mikilli hættu

Á sama tíma og fjöldi manns byggir afkomu sína á að leigja út rödd sína eru hávaðamörk við vinnu víða að engu höfð. Það getur orðið til þess að fólk brýnir rödd sína þannig að skaði hlýst af, segir ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Last fá bankar sem taka of háa þóknun fyrir úttektir í öðrum bönkum. Svo mælir bæjarbúi á Akureyri. „Ég fór í hraðbanka, sem er merktur Arion banka en er sjálfur í viðskiptum við Landsbankann, og tók ... Lesa »

Hreyfing sem eflir konur

Amelia Earhart flugkona var Zontakona. Stuttu eftir hvarf hennar 1937 var stofnaður sjóður innan Zontahreyfingarinnar í Bandaríkjunum til að styrkja konur til doktorsnáms í greinum sem tengdust ... Lesa »

L-listinn fengi einn bæjarfulltrúa

L-listinn fengi einn bæjarfulltrúa ef kosið yrði í sveitarstjórnarkosningum núna. Þetta kemur fram í könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands gerði og birt er í Morgunblaðinu í dag. Listinn ... Lesa »

Bókin um Helenu

Bók Óskars Þórs Halldórssonar blaðamanns um Helenu Eyjólfsdóttur söngkonu, Gullin ský, er bók sem verður öllum þeim sem kynnst hafa Helenu persónulega eða eiga minningar við tónlist hennar ... Lesa »

Benedikt Sigurðarson

Lækkum iðgjöld í lífeyrissjóð – bætum kjör án kostnaðarhækkana og verðbólgu

Frá Hruni hefur verulegur fjöldi fólks glímt við versnandi kjör, lægri laun og atvinnuleysi en umfram allt hefur greiðslubyrði af húsnæði - bæði lán og leiga - rokið upp fyrir velsæmismörkin. Hækkun ... Lesa »

Ekki prófkjör hjá Samfylkingu

Á félagsfundi Samfylkingarinnar á Akureyri í gær, 21. nóvember, var samþykkt að kosin yrði uppstillingarnefnd til að velja frambjóðendur á framboðslista Samfylkingarinnar fyrir ... Lesa »

STAFRÓFIÐ eftir Hlyn Hallsson

Út er komið hjá Flóru og forlagi höfundanna bókverkið „Stafrófið - Das Alphabet (IS) - The Alphabet (IS)” eftir Hlyn Hallsson. Hlynur hefur áður gefið út nokkrar bækur og bókverk og þar má nefna ... Lesa »

Einlægur á Alþingi

Hjálmar Bogi Hafliðason, varaþingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, lét mikið að sér kveða þegar hann sór trúnaðareið og settist í fyrsta skipti inn á Alþingi í vikunni. Hann var ekki ... Lesa »

Fimm nýir heiðursfélagar Leikfélags Akureyrar

Á aðalfundi Leikfélags Akureyrar í gærkvöldi voru fimm listamenn gerðir að heiðursfélögum. Það eru þau Aðalsteinn Bergdal, Arnar Jónsson, Gestur Einar Jónasson, Saga Geirdal Jónsdóttir og Þórhildur ... Lesa »

Mikið agaleysi í umferðinni

„Ég rek mig á þetta á morgnana að fólk er ómerkt alveg í hrönnum. Hvar eru endurskinsmerkin?“ Spyr Haraldur Ævarsson atvinnubílstjóri. Í frétt blaðsins í síðustu viku kom fram gagnrýni á ... Lesa »

Cuba libre á Örkinni hans Nóa

Jazzklúbbur Akureyrar hefur legið í láginni undanfarin misseri en var í haust endurreistur og stendur fyrir tónleikum hljómsveitarinnar Cuba Libre í kvöld, föstudagskvöld. Hljómsveitin, sem hefur ... Lesa »

Vanti skilning á mikilvægi ferðaþjónustu

Ferðaþjónusta á hafnarsvæðinu við Dalvík hefur verið afgangsstærð að sögn Freys Antonssonar framkvæmdastjóra og eiganda hvalaskoðunarfyrirtækisins Arctic Sea Tours. Hann segir hvalaskoðun ... Lesa »

Samtök atvinnulífsins sökuð um sögufölsun og hræðsluáróður

Stéttafélögin Framsýn og Verkalýðsfélag Akraness fordæma harðlega auglýsingaherferð Samtaka atvinnulífsins sem þau segja vera ósmekklega og miða að því að gera lítið úr kröfum verkafólks um hækkun ... Lesa »

Skoða meira