Einn alvarlegasti glæpur sem hægt er að gera nokkrum manni er að misnota hann kynferðislega. Nauðgun er talin einn alvarlegasti glæpur í íslensku dómskerfi. Það að verða fyrir grófri árás annars einstaklings veldur því að brotaþoli þarf að ganga í gegnum eld og brennistein þar sem sálarlíf hans er í rúst. Þessi árás, sem nauðgun er, er því ekkert sem á að hafa í flimtingum.
Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Þú vilt engum svo illt að hann verði fyrir þess lags árás sem nauðgun er, vafalaust sú gerð árásar sem hefur hvað verst áhrif á sálarlíf brotaþola. Vafalaust þekkjum við öll einhvern einstakling sem hefur orðið fyrir slíkri árás. Við vitum það sennilega því öll, úr eigin fjölskyldu, hversu mikil áhrif þess konar árás getur haft á daglegt líf einstaklings.
Þetta hugtak, „nauðgun“, er samt enn þann dag í dag notað manna á millum eins og eitthvað léttvægt grín. Mýmörg dæmi eru úr bandarískum dósahlátursþáttum þar sem hugtakið er upptaktur brandara, til þess eins að vekja upp hlátur áhorfandans. Þessi grófasta árás á einstakling sem hægt er að hugsa sér er þar með notað í samfélaginu á þann máta að gert er lítið úr.
Ég hef oft á tíðum séð hugtakið „Face-rape“ notað af ungu fólki í dag. Það á við þegar einhver vinur eða kunningi kemst inn á facebook síðu annars manns, og fremur einhvern hrekk þar. Það er einmitt það sem það er: hrekkur. Þessi hugtakanotkun veldur mér miklum áhyggjum. Hún bendir til þess að nauðgun sé eitthvað sem hægt er að hlægja að; góðlátlegt grín, sem veldur örlitlum skammvinnum skaða. Eitthvað sem hægt er að laga með því að segja „nei djók, þetta var ég“. Veröldin er, þótt ótrúlegt megi virðast, ekki svona barnslega einföld.
Við eigum ekki að draga úr vægi nauðgunar í íslenskri umræðuhefð. Nauðgun er dauðans alvara og hefur oft á tíðum gríðarleg áhrif á þann sem verður fyrir árásinni til langs tíma. Við verðum að passa okkur hvernig við notum hugtök.
Það að leika sér á facebook síðu annars manns, er ekki nauðgun, heildur heimskupör, kjánaskapur, hrekkur eða þvíumlíkt. Vil ég því biðla til lesenda um að koma með heppilegt „nýyrði“ á þetta handónýta hugtak „face-rape“.
Sveinn Arnarsson
@Sveinn_A
Feiri Pistlar eftir sama höfund:
Sunnudagsmorgunn og Rúv: Sjónvarp allra landsmanna?
Jafnrétti í kennslubókum





