Með augun opin

Alexandra Sól Ingólfsdóttir

Það var fimmtudagskvöld og ég sat í kvosinni. Klukkan var alveg að verða átta og allir biðu spenntir eftir því að kvöldvakan byrjaði. Klukkan sló átta og kvöldið hófst. Kvöldvakan þetta tiltekna kvöld reyndist heldur styttri en venjulega en þau samskipti sem áttu sér stað þar voru hinsvegar afskaplega óvenjuleg eða hvað?

Kvöldið byrjaði á því að FemMA kynnti starfsemi sína. Félagið er að mínu mati frábær og löngu tímabær viðbót við félagaflóru skólans og tel ég að flestir myndu taka undir þá skoðun með mér. Félagsmenn FemMa voru með myndband til að kynna félagið og starfsemi þess en myndbandinu var að auki ætlað að opna augu nemenda um það hvað hugtakið feministi í raun þýðir. Sýningu myndbandsins fylgdu fagnaðaróp og blístur. Hin nýfundna þekking og virðing voru þó fljótar að hverfa því 3 mínútum síðar var kvenfyrirlitningin mætt að nýju í öllu sínu veldi. Það var eins og allir hefðu gleymt myndbandinu og boðskap þess og allt fór aftur yfir í sitt gamla far er næsti dagskrárliður kvöldvökunnar var kynntur.

Djúpalaugin var næst – stefnumótaþáttur með einni stúlku og þremur strákum. Þau orðaskipti sem þar fóru fram milli þátttakenda voru á þann veg að sumir áhorfenda urðu næstum orðlausir og tala ég þar fyrir hönd bæði stelpna og stáka. Kvenþátttakandinn spurði strákana ýmissa spurninga og voru flest svör þeirra lituð mikilli kvenfyrirlitningu og hljómuðu nokkur þeirra t.d. svona: “putt og kúr á fyrsta deiti”, “vond lykt af píkunni á þér … þetta er búið”, “ef þú værir í annarlegu ástandi niðri í bæ myndi ég ekkert endilega hjálpa þér heim”, og áfram hélt virðingaleysið. Sérstaklega sló eitt svar eins þátttakandans er hann var spurður hvernig hann myndi lýsa sínu fullkomna deiti en svar hans var eftirfarandi: “þá myndi ég allavegana ekki þurfa að nota rophies”. Kvöldið leið og hélt tal með þessum hætti áfram og þurftu strákarnir að sjálfsögðu að toppa kvenfyrirlitningu hvors annars til skiptist. Það skal þó tekið skýrt fram að þessi tegund svara kom aðeins frá tveimur yngri keppendum Djúpulaugarinnar. Þriðji og síðasti keppandinn er á sínu fjórða ári við skólann og aldrei heyrðist votta fyrir kvenfyrirlitningu í svörum hans.

Við þessa upplifun veltir maður því fyrir sér hvort nauðsyn sé að ná ákveðnum þroska til þess að geta borið fulla virðingu fyrir hinu kyninu? Er það svo? Hefur þetta eitthvað með aldur að gera? Eru 5, 10 eða 15 ára gamlir strákar einfaldlega ekki færir um að bera virðingu fyrir hinu kyninu? Eða hefur þetta kannski eitthvað með uppeldi og umhverfi að gera og ef svo er hvaða skilaboð eru drengir þá að fá heima hjá sér eða frá samfélaginu til að þeim finnist í lagi að láta það út úr sér sem þeir gerðu þetta kvöld? Vandamálið er þó að þetta var ekki einangrað atvik og virðingarleysið ekki einskorðað við svör þessara tveggja pilta. Meirihluti áhorfenda virtist ekki sjá neitt athugavert við það sem fram fór á sviðinu því hvert svar strákanna uppskar hlátur og aðdáun stórs hluta þeirra menntskælinga sem í kvosinni sátu og því andstyggilegra sem svarið var, því jákvæðari viðbrögð. Tilfinning mín sem áhorfanda var hinsvegar allt önnur. Voru þau sem hlógu öll með lokuð augun fyrir því sem var að gerast á sviðinu? Hvar var virðing þeirra fyrir sjálfu sér eða öðrum?

Nú myndu einhverjir vilja benda á það að atriðið hafi verið til skemmtunar og að þau orð sem þar fóru milli þátttakenda hafi verið sögð í gamni. Þetta hafi bara verið venjuleg viðbrögð. Þau rök leiða þá til annarrar spurningar. Hvers vegna þurfa brandarar nútímans að hljóma svona? Hvers vegna þurfa þeir stöðugt að vera á kostnað annarra og hvers vegna telst það venjulegt og eðlilegt að hlægja að slíkum bröndurum? Brandarar eiga ekki að vera niðurlægjandi. Brandarar sem hljóma þannig innihalda dulin skilaboð. Þau skilaboð að konur séu ekki þess virði að bera eigi virðingu fyrir þeim. Þau skilaboð að konur séu bara til eins hlutar og að karlmenn séu þeir sem valdið hafa og þannig eigi það að vera. Brandarar sem þessir viðhalda gömlum gildum um konuna sem eign karlmannsins og grafa undan feminisma nútímans og standa í vegi fyrir jafnrétti.

Það væri fróðlegt að vita hvort þátttakendur hefðu látið sömu orð falla ef mæður þeirra eða ömmur hefðu setið í kvosinni. Hversu stoltar hefðu þær verið og hversu mikið hefðu þær hlegið? Ég ætla að láta ykkur um að svara því.

Það er afskaplega sjaldan sem ég skammast mín fyrir að vera MA-ingur en þetta kvöld var því miður eitt af þeim skiptum.
Opnum augun.
(Greinin birtist fyrst á Fréttamiðli fjölmiðlanema í MA)

Pollapönk í Hofi

Í raun voru tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands, Tónlistarskólans á Akureyri og rokkhljómsveitarinnar Pollapönks harla merkilegur atburður. Þó ... Lesa »

Persónulegt landslag

Síðastliðinn mánudag var opnuð samsýning meir en 40 listamanna í Verksmiðjunni á Hjalteyri, þar sem áður var iðnaðarstarfsemi. Akureyri vikublað slóst ... Lesa »

Sveitarfélög og svæðisbundin fjölmiðlun

Svæðisfjölmiðlun er mikilvæg fyrir samskipti íbúa, þróun lýðræðis og sköpun sjálfsmyndar. Aðgangur að upplýsingum um samfélagið og möguleiki til ... Lesa »

Vatnstjón hjá VG á Akureyri

Kosningaskrifstofa Vinstri hreyfingarinnar, græns framboðs á Akureyri varð fyrir miklu tjóni síðastliðna nótt þegar heitavatnsrör sprakk í húsnæðinu. ... Lesa »

Við getum breytt kerfinu

“Þetta fyrirkomulag er í hróplegu ósamræmi við niðurstöður kosninga og þar með vilja kjósenda” Í vor munu sjö flokkar bjóða fram til bæjarstjórnar ... Lesa »

Þess vegna kristinfræði!

Á baksíðu síðasta tölublaðs Akureyri vikublaðs spyr Silja Björk hvers vegna kristinfræði sé skyldufag í grunnskólum, hvort ekki væri „nær að kenna ... Lesa »

Er hann náttúruverndarsinni?

Hann notar handsláttuvél, honum finnst ekki verjandi að brenna bensíni til að slá garðinn. Honum finnst þó koma til greina að nota ... Lesa »

Vangaveltur um lífsýnasöfnun

Ég er ekki í hópi þeirra hundrað þúsund Íslendinga sem hafa fengið beiðni um að láta lífsýni af hendi til rannsóknar á orsökum og eðli algengra, ... Lesa »

Michael Clarke skrifar

Eurovision

This is about the first time since Iceland started to take part in Eurovision that no-one is actually expecting them to win. The very first entry, ... Lesa »

Bæjarmyndin til framtíðar – græna Akureyri

Í stefnuskrá vinstrihreyfingarinnar græns framboðs (VG) á Akureyri er lögð fram skýr sýn á þróun Akureyrar til framtíðar í þágu fjölbreyttra ... Lesa »

Frisbígolfvöllur á Akureyri

Á fundi framkvæmdaráðs í gær, föstudaginn 9. maí, var samþykkt að gera skuli frisbígolfvöll á Hamarkotstúni. Kostnaður við gerð vallarins verður ... Lesa »

Við viljum aukna nýsköpun

Fjölbreytt atvinnulíf er hverju sveitarfélagi nauðsynlegt. Eins og dæmin sanna á okkar góða landi, þá kann það ekki góðri lukku að stýra að treysta um ... Lesa »

Heyrst hefur...

Heyrst hefur

Heyrst hefur að Akureyringurinn og tónlistarmaðurinn Orri Harðarson rói á ný mið sem listamaður senn án þess að hann hyggist draga saman seglin á ... Lesa »

Ný sumaráætlun strætó

Frá og með 18. maí nk. tekur ný áætlun gildi á Vestur- og Norðurlandi. Helstu breytingar eru að leið 57 fer tvær ferðir á laugardögum milli Akureyrar ... Lesa »

Close
Please support the site
Fylgstu með okkur á facebook líka!