Kynskiptur vinnumarkaður er ein helsta ástæða kynbundins launamunar og ný kjarakönnun BHM hefur sýnt að því fleiri konur sem eru í hverri stétt því lægri eru launin. „Ef takast á að uppræta launamisréttið þarf markvisst að vinna gegn kynbundnu náms- og starfsvali og kynskiptum vinnumarkaði,“ segir í auglýsingu um hádegisfund sem Jafnréttisstofa hefur boðað til á Kvennafrídaginn, fimmtudaginn 24. október á Hótel KEA. Fundurinn verður helgaður kynbundnu náms- og starfsvali og kynskiptum vinnumarkaði.
Þrátt fyrir gríðarlegar breytingar á Íslenskum vinnumakaði síðustu áratugi eru úreltar staðalmyndir kynjanna, þegar kemur að náms- og starfvali enn mjög rótgrónar. Sem dæmi má nefna að árið 2011 voru konur 95% starfsmanna á leikskólum en karlar 91% starfsmanna við fiskveiðar. Konur hafa þó frekar en karlar brotist yfir landamærin og virðast hafa meira frelsi til að fara ótroðnar slóðir. Karlar mæta hins vegar oft fordómum ef þeir hætta sér inn í hefðbundnar kvennagreinar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Jafnréttisstofu
Í aðgerðaráætlun ríkisstjórnarinnar gegn kynbundnum launamun er gert ráð fyrir að unnin verði framkvæmdaáætlun, um langtímaaðgerðir til úrbóta, þar sem sérstök áhersla verður lögð á að fjölga körlum í kvennastéttum og konum í karlastéttum. „Mikilvægt er að byrja sem fyrst að vinna með kynbundin viðhorf barna og unglinga til starfa og þar gegnir skólinn mikilvægu hlutverki,“ segir í tilkynningu frá Jafnréttisstofu.
Fundurinn stendur frá kl. 12-13:30 og verða flutt sex stutt erindi sem snúa að hefðum í náms og starfsvali.
12:00 - Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu - Rjúfum hefðirnar, förum nýjar leiðir
12:15 - Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari VMA - Stúlkur og tækninám
12:30 - Lena Rut Birgisdóttir, námsráðgjafi í MA - Karlar í kvennastörfum
12:45 - Halldór Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar - Hræðast karlar gamalt fólk?
13:00 - Berglind Judith Jónasdóttir, húsa- og húsgagnasmiður og Guðrún Björg Eyjólfsdóttir, húsgagnasmiður - Mublur: Stelpur í smíðum
13:15 - Katrín Björg Ríkarðsdóttir, framkvæmdastjóri samfélags- og mannréttindadeildar - „Hvað er svona merkilegt við það…“ Konur í hefðbundnum karlastörfum
-SBS


