Þá er loksins komið að því sem margir hafa beðið eftir frá því í mars. Handboltatímabilið er að byrja aftur, eftir óvenjulega langt frí Akureyringa. Í fyrra enduðu þeir í 6. sæti deildarinnar og tóku því hvorki þátt í úrslitakeppni né umspili um sæti í 1. deild. Leikmenn, sem og áhorfendur, fóru því í frí í loks mars.
Nú geta handboltaunnendur hinsvegar tekið gleði sína á ný. Tímabilið hefst í dag og það með heimaleik gegn Fram, sjálfum Íslandsmeisturunum.Leikurinn hefst klukkan 19.00 í íþróttahöllinni á Akureyri og verður væntanlega margt um manninn. Aðstandendur liðsins munu selja ársmiða og opnar húsið klukkan 18.00. Eins og í fyrra verður „barnaherbergið“ opið á meðan leik stendur en þar geta krakkar sem hafa ekki endingu í að horfa á heilan leik, leikið sér á meðan mamma og pabbi hvetja liðið.
En þá aðeins að liðinu sjálfu. Miklar sviptingar hafa orðið á Akureyrarliðinu milli tímabila. Heimir Örn Árnason, þjálfari liðsins, lagði skónna á hilluna og frændurnir Guðmundur Hólmar og Geir Guðmundsson réru á önnur mið. Þá fór Oddur Gretarsson til Þýskalands og Hörður Fannar til Færeyja. Í staðin eru komnir þeir Gunnar Þórsson frá Val, Þrándur Gíslason frá Aftureldingu og Kristján Orri frá Gróttu. Þá fékk liðið einnig til liðs við sig Vladimir Zejak, skyttu frá Serbíu.
Akureyringum hefur opinberlega verið spáð 6. sætinu, enda með ungt og nánast nýtt lið í höndunum. Mikið mun mæða á Bjarna Fritz, öðrum af þjálfurum liðsins, sem mun spila með í vetur. Þá fá ungir strákar tækifæri til þess að sýna sig og sanna, sem oftar en ekki hefur reynst vel.
Fram er spáð 7. sæti deilarinnar en liðið lyfti Íslandsbikarnum í fyrra. Ef einhver heldur að Akureyringar hafi misst marga leikmenn, þá hafa þeir ekki séð Fram liðið. Þeir hafa misst sína stærstu pósta og lítið fengið í staðin. Þjálfara liðsins ættu allir þó að kannast við. Guðlaug Arnarsson sem lék með árabil með Akureyri.
Leikurinn hefst klukkan 19.00 í Höllinni í kvöld en húsið opnar klukkan 18.00 með mat fyrir þá sem eiga stuðningskortin góðu. Áfram Akureyri.
-SMS
siguroli@akv.is
