Akureyringar gerðu sér lítið fyrir og unnu öruggan sigur á Íslandsmeisturum Fram, 25-18, þegar liðin mættust í Íþróttahöllinni í gær. Sigur Akureyringa var nokkuð öruggur, þó svo að jafnræði hafi verið með liðunum framan af.
Báðum liðum gekk herfilega að skora fyrstu 20 mínútur leiksins og var staðan 2-2 eftir 18 mínútur. Varnir beggja liða voru frábærar en sóknirnar voru einnig hörmulegar. Leikurinn var ekki mikið fyrir augað og var töluverður haustbragur á báðum liðum. Akureyringarnir spiluðu aggressíva 3-2-1 vörn, sem gekk fullkomnlega upp og var Jovan Kukobat frábær fyrir aftan hana. Hann varði samtals 14 bolta í leiknum og fékk aðeins á sig 18 mörk.
Þegar Akureyringarnir náðu að hrista af sér slenið og stressið, fóru þeir að leika vel sóknarlega og mörkin fóru að detta inn. Þeir fóru að fá hraðaupphlaup og sigldu hægt og bítandi fram úr Frömurum. Valþór Atli Guðrúnarson var frábær í leiknum og stjórnaði sóknarleik Akureyringa af mikill festu og þá voru hornamennirnir: Gunnr, Andri og Kristján einnig mjög góðir.
Lokatölur 25-18 og fyrsti sigur Akureyrar í höfn. Næsti leikur Akureyringa er gegn ÍR á laugardaginn 28. september í Reykjavík. Sá leikur verður sýndur beint á RÚV.
Myndir: Sævar Sigurjónsson
-SMS
siguroli@akv.is
