Agnes M. Sigurðardóttir, biskup Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umfjöllunar í Kastljósinu í gær sem og viðtals í Fréttablaðinu í dag við sóknarprestinn á Húsavík. Agnes leggur áherslu á að kirkjan og starfsmenn hennar eigi að standa með þolendum og styðja þá og mistök verði að leiðrétta og læra af.
Ummæli Sighvats Karlssonar, sóknarprests á Húsavík hafa vakið mikla athygli og reiði sumra en hann segist þar biðjast „auðmjúkur afsökunar hafi [hann] sært einhvern“
Yfirlýsingin í heild hljóðar svo:
Í tilefni af viðtali við Guðnýju Jónu Kristjánsdóttur í Kastljósi í gærkvöldi og viðtali við Sighvat Karlsson sóknarprest á Húsavík í Fréttablaðinu í dag er mikilvægt að koma eftirfarandi á framfæri.
Nauðgun er ofbeldi og ofbeldi á aldrei að líðast. Kirkjan og prestarnir sem lykilstarfsmenn hennar eiga að standa með þolendum og styðja þá í að leita réttar síns.
Guðný Jóna sýndi hugrekki með því að kæra ofbeldið á sínum tíma og aftur núna með því að segja sögu sína opinberlega. Kynferðisbrot eiga ekki að liggja í þagnargildi og mikilvægt er að samfélagið styðji þolendur til að hafa kjark til stíga fram og leita réttar sins. Vitnisburður hennar í Kastljósinu er mikilvægur í því samhengi.
Ég og prófastur Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis höfum rætt við sóknarprestinn á Húsavík og hef ég falið vígslubiskupi á Hólum að fylgja málinu eftir.
Kirkjan hefur einsett sér að vera fyrirmyndarstofnun þegar kemur að viðbrögðum við kynferðisbrotum. Þegar mistök eru gerð í viðbrögðum kirkjunnar þarf að leiðrétta þau og læra af þeim. Þannig ætlar kirkjan að vinna.


