Íslandsmeistararnir í knattspyrnu Þór/KA leika sinn fyrsta heimaleik á nýju keppnistímabili þann 7. maí. Þar ættum við öll að mæta og hvetja knattspyrnukonurnar til dáða. Þær urðu að auki meistarar meistaranna fyrir nokkrum dögum.
Öll getum við verið stolt af framgöngu þeirra í íþrótt sinni. Akureyrarbær greiddi Íslandsmeisturunum út styrk í tilefni af sigrinum eins og venja er til. Hann nam 40% af því sem fordæmi er fyrir þegar karlalið í bænum vann Íslandsmeistaratitilinn. Konurnar fengu kr. 600 þús. en hefðu að réttu lagi átt að fá um kr. 1.500 þús. þegar horft hefur verið til verðlagsbreytinga á þeim árum sem liðu á milli þessara atburða.
L-listinn greiðir konum 40% af því sem karlar fengu af sama tilefni. L-listi fólksins er ópólitískur stjórnmálaflokkur sem lætur embættismönnum eftir að stjórna að sögn forystumanns flokksins. Það er ósanngjarnt gagnvart bæði kjósendum og embættismönnum.
Embættismenn geta ekki borið ábyrgð á pólitík L-listans. Gagnvart kjósendum er vandinn við ópólitíska stjórnmálaflokka að lýðræðisþjóðfélagið þarf að velja og hafna. Stjórnmálaflokkar gegna mikilvægu hlutverki við þetta val okkar með því að kynna kjósendum stefnumál sín fyrir kosningar og framfylgja þeim eftir mætti að loknum kosningum. Það eru stjórnmál.
Í stefnuskrá L-listans fyrir síðustu bæjarstjórnarkosningar segir: „Við viljum útrýma kynjamisrétti og tryggja jafnrétti…“ Hvað varð um þetta stefnumál þegar L-listinn ákvað hvernig Akureyrarbær verðlaunaði Íslandsmeistarana í knattspyrnu árið 2012?
Þorlákur Axel Jónsson


