Engin útköll hafa verið hjá lögreglu í kvöld vegna bíladaga og aðeins einn tekinn fyrir of hraðan akstur nú í kvöld. Það er mat þeirra sem fylgst hafa með bíladögum í kvöld að allt fari vel fram.
Burn out keppni var haldin á svæði Bílaklúbbs Akureyrar í dag og eins og sjá má af meðfylgjandi myndum sem Karl Jónas Thorarensen tók í kvöld gekk spólið vel og margir fylgdust áhugasamir með en um leið eru margir íbúar afskaplega ánægðir með að keppnin og aðrir viðburðir bíladaga fari nú fram á svæði Bílaklúbbsins.
Þó nokkur fjöldi tjaldgesta er nú á tjaldsvæði bílaklúbbsins og margir spóka sig í bænum á fínustu tryllitækjum og víða heyrist spólað en vonir standa til að gestir nýti sér svæði bílaklúbbsins til að fá útrás fyrir spólið enda verður svæðið opið spólþyrstum alla helgina.



