Í tilkynningu sem Geo Travel sendi frá sér eftir að fyrirtækinu varð ljóst að Akureyri vikublað myndi fjalla um brotið á Öskjuleið kemur fram að skýrar reglur gildi um hvers vegna loka megi vegum. Einungis megi loka vegum þegar hætta sé á ferðum, eða hætta sé á að vegur sé skemmdur á akstri. Geo Travel hafi engin spjöll unnið með ferð sinni í Öskju.
„Við ferðaþjónustuaðilar sem gera út á jeppana höfum árum saman beðið vegagerðina um að merkja vegina ófæra eða 4×4 fært fjallajeppum. Þegar tjarnir hafa farið niður og ekki er lengur hætta á skemmdum. En ekki hefur verið tekið tillit til þeirra óska heldur hefur verið beðið eftir að skálarir hafa opnað og vegirnir heflaðir,“ segir í tilkynningunni. Einnig segir að í ferð Geo Travel í Öskju hafi starfsmenn séð tvö tilfelli um minniháttar utanvegaakstur eftir óbreyttan jeppa sem hafi verið tilkynnt til lögreglu og Vatnajökulsþjóðgarðs.
„En að öðru máli sem er mun ánægjulegra er að þessi ferð var fyrsta ferð sem við vitum til að einstaklingur bundinn í hjólastól hafi farið inn að Öskjuvatni. Konan heitir Liz Demeyer og var alveg himinlifandi yfir að geta heimsótt einn af flottustu stöðum Íslands,“ segir m.a. í tilkynningunni.



