Maðurinn sem féll í Hjaltadalsá í Skagafirði þriðjudaginn 11. júní síðastliðinn hét Jón Ólafsson, til heimilis að Kárastöðum í Hegranesi í Skagafirði. Jón var 69 ára að aldri, fæddur 21. maí 1944. Hann var ókvæntur og barnlaus. Þetta kemur fram á vef mbl.is
Maðurinn var á minnkaveiðum ásamt öðrum manni en féll í ána rétt eftir hádegið þriðjudaginn 11. júní. Áin var þá í miklum vexti og mórauð aðstæður til leitar erfiðar. Veiðifélagi mannsins ók til Sauðárkróks til að láta vita af atvikinu en hann var ekki með síma á sér. Mikil leit hófst þá, um einum og hálfum tíma eftir atvikið og stóð fram á fimmtudagskvöld. Mikil rannsóknarvinna fór fram meðfram leitinni, sett voru út reköld o.fl.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Sauðárkróki hefur formlegri leit verið hætt en björgunarsveitir munu engu að síður sinna eftirgrennslan um ótilgreindan tíma.



