Á föstudaginn, 21. júní, frumsýnir Norðurbandalagið leikverkið Lúkas í Rýminu á Akureyri. Jón Gunnar Þórðarson, leikstjóri sýningarinnar segir verkið vera unnið frá grunni af öllum þátttakendum en 12 manns fengu vinnu við gerð verksins í gegnum verkefnið skapandi sumarstörf á vegum Akureyrarbæjar.
„Þetta verður skemmtilegt og fyndið en húmorinn er kolsvartur enda undirtónninn grafalvarlegur,“ segir Jón Gunnar en í kynningu á sýningunni er tekið fram að hún sé ekki ætluð börnum innan 14 ára.
„Verkið samanstendur af ótrúlegum sönnum sögum. Sögum um fólk, hefnd og frið, sögum af því hversu orðljótt fólk getur verið á kommentakerfinu,“ segir Jón Gunnar. „Þekktasta sagan í verkinu er sagan um hundinn Lúkas sem týndist í kringum bíladaga árið 2007. Fljótlega fóru að berast sögusagnir og orðrómur um afdrif hundsins, hópur drengja hafði troðið honum ofan í íþróttatösku og sparkað í hana þar til hundurinn hætti að veina. Íslenska þjóðin sameinaðist í sorg og samhug og átti ótrúlega auðvelt með að trúa því slæma, það voru þrjár kertafleytingar haldnar og mætingin miklu betri heldur en á kertafleytingum sem eru haldnar til að minnast fórnarlamba kjarnorkusprengjunnar á Hirosima.“
Tónlistin spilar stórt hlutverk í sýningunni en tónlistarstjóri er Þorvaldur Örn Davíðsson. „Það verður heil hljómsveit í verkinu og það er m.a.s. búið að byggja heilt pípuorgel úr skólprörum,“ segir Jón Gunnar.
Norðurbandalagið er þó ekki eini hópurinn á vegum skapandi sumarstarfa sem er að vinna í Rýminu í samstarfi við Leikfélag Akureyrar. Myndlistarhópurinn III hefur verið þar að störfum við að gera veggverk í salinn á jarðhæð húsnæðisins. Fyrsta verkið verður tilbúið á föstudaginn og verður salurinn opnaður kl. 18 en þar verður DJ Arnar Ari að spila og barinn opinn svo bæði þeir sem ætla að koma á Lúkas geta mætt snemma til að hita upp fyrir sýninguna en húsið verður öllum opið fram að leiksýningu. Í kjölfarið verður Rýmið opin vinnustofa og verk í vinnslu til sýnis sem og ýmsar uppákomur. Það eru Freyja Reynisdóttir, Mekkín Ragnarsdóttir og Karólína Baldvinsdóttir sem skipa myndlistarhópinn III.



