Á sjöunda tug björgunarsveitamanna er við leit í og við Hjaltadalsá þar sem minkaveiðimanns er saknað eftir að hann féll í ána í dag. Verið er að kalla út björgunarsveitir á Eyjafjarðarsvæðinu og munu þær leysa af þá leitarmenn sem verið hafa við leit í dag. Ráðgert er að leita í alla nótt og fram á miðjan dag á morgun gerist þess þörf. Þá verður ástandið metið í samvinnu við lögreglu. Þetta kemur fram í tilkynningu sem barst frá Landsbjörg rétt í þessu.
Leitarsvæðið er niður með Hjaltadalsá, frá þeim stað sem maðurinn féll, og fjörur við ósa hennar. Leitað er með bátum, kajökum og göngufólki.
Þyrla Landhelgisgæslunnar var notuð við leit í dag en hún fór aftur til Reykjavíkur fyrir um klukkustund.
Veður hefur verið gott á leitarsvæðinu í dag en nú er að skella á þoka.




