Sýningin Stöngin inn sem leikfélögin í Fjallabyggð settu upp í vetur var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2013. Nú gefst Norðlendingum sem misstu af sýningunni í vetur eitt tækifæri til að sjá hana því hún verður sýnd í Tjarnarborg á Ólafsfirði fimmtudagskvöldið 13. júní kl. 20.
Í umsögn dómnefndar BÍL um sýninguna segir meðal annars: „Leikfélag Ólafsfjarðar og Leikfélag Siglufjarðar sameinuðu krafta sína í uppsetningunni á þessu skemmtilega nýja íslenska verki eftir Guðmund Ólafsson með frábærum árangri. Það er greinilega mikill kraftur í hinum sameinuðu leikfélögum, sem láta sig ekki muna um að brjótast í gegnum skaflana í Héðinsfirði til að skapa skemmtilega og fjöruga leiklist sem hefur hitt rækilega í mark í heimahéraði“.
Sýningin verður flutt í Þjóðleikhúsinu í Reykjavík 16. júní. Fáir miðar eru enn lausir á sýninguna svo sunnanfólk verður að láta hendur standa fram úr ermum til að ná í skottið á Fjallabyggðaleikurunum.

