Hús vikunnar: Gamli Barnaskólinn, Hafnarstræti 53

Hús vikunnar: Gamli Barnaskólinn, Hafnarstræti 53

Mynd tekin í mars 2007, þegar endurbygging hússins var í fullum gangi.

Síðast tók ég fyrir hinar öldnu stórbyggingar Menntaskólans á Akureyri á brún Brekkunnar, Gamla Skóla og Fjósið en nú er það önnur merk skólabygging neðan Brekkunnar, Gamli Barnaskólinn.

Barnaskólinn er reistur árið 1900 og var byggingameistari hússins Bjarni Einarsson. Mjög var vandað til verksins og mun þetta hafa verið með fyrstu húsum með fullkominni miðstöðvarkyndingu. Húsið er einlyft með lágu portbyggðu risi á háum steyptum kjallara – eiginlega orkar svolítið tvímælis að kalla neðri hæðina kjallara þar eð hann er aðeins niðurgrafinn brekkumeginn. En nóg um það.

Húsið var tekið í notkun18.október 1900 og var húsið skólahúsnæði til 1930 er Barnaskóli Íslands, kallaður svo, nú Rósenborg var reistur og var einnig gosdrykkjaverksmiðja í kjallara hússins fyrstu árin.

Staðsetning þessa húss er engin tilviljun. Þannig er mál með vexti að þegar fyrir lá að reisa ætti sameiginlegan barnaskóla fyrir Innbæ og Oddeyri voru menn ekki á eitt sáttir hvar hann skyldi standa. Allir vildu hafa hann sem næst sér. Því var vegalengdin á milli nyrsta hluta Innbæjar og syðsta hluta Oddeyrar mældur út og fundin miðjan sem var einmitt þarna.

Þess má geta að á þessum tíma var talað um Innbæinn sem Akureyri og Innbæingar kölluðust Akureyringar. Enda er hin eiginlega Akureyri undir Búðargili, þar sem nú er Höepfnersbryggja. Akureyri og Oddeyri voru þannig lengi tvö aðskilin byggðarlög.

Samkomuhúsið reis svo 6 árum síðar á þessum stað, af sömu ástæðu; miðja vegu milli bæjarhlutana tveggja. Ekki hefur hinsvegar fylgt sögunni við hvaða punkta var miðað þegar þessi mæling var gerð. Alltént finnst mér þessi staður einhvern vegin vera mikið nær Innbænum en Oddeyri.

Eftir að húsið lauk hlutverki sínu sem skóli var það að hluta til íbúðarhús en Amtsbókasafnið hafði þarna einnig aðsetur. Þá bjó Davíð Stefánsson frá Fagraskógi þarna um tíma um tíma þarna en hann gegndi forstöðu safnsins um árabil. Búið var í húsinu fram undir 1980 en þá var lappað mikið uppá húsið sem hafði drabbast þó nokkuð niður. Eftir það var húsið notað sem geymsluhúsnæði fyrir Leikfélag Akureyrar.

Húsið var tekið allt í gegn árin 2006-07 og var húsið þá endurbyggt alveg að innan og einnig byggt við neðri hæðina að sunnan. Dælu- og spennistöð sem stóð nokkra metra frá húsinu rifin og felld inní viðbygginguna. Í ágúst 2007 opnaði þarna Saga Capital fjárfestingabanki og er húsið nú allt hið glæsilegasta bæði að utan og innan. Myndin sem fylgir þessari færslu er tekin í mars 2007, þegar endurbygging hússins var í fullum gangi og sjá má gáma fyrir framan þar sem ónýtir innviðir úr húsinu voru settir.

Fyrir þá sem vilja kynna sér fleiri byggingar hér í bæ bendi ég á síðuna mína www.arnorbl.blog.is en þar hef ég birt myndir og söguágrip af hinum ýmsu húsum síðan 2009. Pistlarnir sem hér birtast eru að mestu leyti unnir uppúr pistlunum þar en yfirleitt hef ég endurbætt þá nokkuð og staðfært.

Arnór Bliki Hallmundsson.

Fundur Alþýðufylkingar í kvöld

Alþýðufylkingin boðar til kynningar- og umræðufundar á Akureyri fimmtudagskvöldið 13. júní kl. 20. Fundurinn verður haldinn í Sontasalnum, Aðalstræti 54. Þorvaldur Þorvaldsson, ... Lesa »

Fetað í fótspor danska norðurljósaleiðangursins

Hvað uppgötvuðu danskir leiðangursmenn sem komu til Akureyrar til að rannsaka norðurljós árið 1899-1900? Veistu þú hver Harald Moltke og hvert hlutverk hans var í leiðangrinum? Svör ... Lesa »

Ekkert heitt vatn í Víðilundi

Vegna óvæntra atvika við brunnavinnu þurfti að taka heita vatnið af á stærra svæði en upphaflega reiknað var með. Auk svæðisins í Lundarhverfi sem áður hafði verið auglýst ... Lesa »

Nýr ráðherra hlynntur Nubo?

Breska blaðið Financial Times veltir því upp í grein á heimasíðu sinni hvort ráðherraskipti á Íslandi muni þýða aukinn framgang hjá Kínverjanum Huang Nubo, en hann hefur sótt um land ... Lesa »

Enn ekki búið að tala við Bismarck

Lögreglan á Húsavík hefur enn ekki rætt við Julius von Bismarck, þýska listamanninn sem grunaður er um að vera viðriðinn náttúruspjöll sem unnin voru í Mývatnssveit í vor. Þetta ... Lesa »

Sólarsellur og vindrafstöð knýja klósett við Hverfjall

Í undirbúningi er deiliskipulag þar sem gert er ráð fyrir fyrir salernisaðstöðu og bílastæði við uppgönguna á Hverfjall/fell. Stefnt er að því að framkvæmdin verði einkar ... Lesa »

Ferðaþjónustan hér eins og olían fyrir Norðmenn

Í kvöld kl. 20 verður myndin In memoriam? eftir Ómar Ragnarsson sýnd í Hofi en myndin var gerð haustið 2003 fyrir erlendan markað og hefur ekki verið sýnd hérlendis fyrr. Ómar verður ... Lesa »

Norðurorka

Langþreyttir vegna vatnsmengunar

Til snarpra umræðna kom á fundi sveitarstjórnar Svalbarðsstrandarhrepps á fundi í fyrradag en þar hafa um 600 íbúar sveitarfélagsins mátt sjóða neysluvatn síðan í leysingum í ... Lesa »

N4 fær tíu milljóna byggðagreiðslu

Sjónvarpsmiðillinn N4 á Akureyri fær tíu milljónir króna af opinberu fé til að vinna að bættri ímynd NA-lands. Þorvaldur Jónsson, framkvæmdastjóri N4, staðfestir þetta. „Það ... Lesa »

Björn Þorláksson

Að leggja niður náttúruvernd

Sú hugmynd Sigurðar Inga Jóhannssonar ráðherra Framsóknarflokksins að leggja niður umhverfisráðuneytið lýsir fullkominni firringu og vanvirðingu gagnvart einu stærsta verkefni ... Lesa »

Útskrift hjá Símey og Keili

Þann 6.júní útskrifaði SÍMEY um 100 þátttakendur sem lokið höfðu námsleiðum á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Námsleiðirnar sem nemendur voru að ljúka voru ... Lesa »

Ákveðið að halda áfram leit að minkaskyttunni

Stöðufundi hjá aðgerðastjórn leitarinnar að minkaskyttunni í og við Hjaltadalsá var að ljúka. Ákveðið hefur verið að halda leitinni áfram, a.m.k. fram á kvöld og verið er að ... Lesa »

Blóðgjafadagurinn er á morgun

Blóðgjafafélag Íslands og Blóðbankinn halda alþjóða blóðgjafadaginn hátíðlegan á morgun, fimmtudaginn 13. júní. Tilgangur þessa dags er að vekja athygli á blóðgjöfum og því ... Lesa »

Verðlaunuð fyrir að kenna fötluðu fólki á skíði

Beth Fox sem kennt hefur á námskeiðum fyrir fatlaða í Hlíðarfjalli undanfarin ár fékk á dögunum Cobb Partnership verðlaunin sem Fullbright stofnunin í Bandaríkjunum veitir. ... Lesa »

Síðasti séns á að sjá Stöngin inn

Sýningin Stöngin inn sem leikfélögin í Fjallabyggð settu upp í vetur var valin athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins 2013. Nú gefst Norðlendingum sem misstu af sýningunni í vetur eitt ... Lesa »

Kom í heiminn í sjúkrabíl í Öxnadal

Þriðja barn Álfhildar Leifsdóttur og Sölva Sigurðssonar sem búsett eru á Sauðárkróki kom í heiminn í sjúkrabíl í Öxnadalnum í morgun kl. 7:17. Frá þessu segir á vefnum ... Lesa »

Kundalini jóga – leið til að takast á við streitu á heildrænan hátt

Við íslendingar erum þekktir fyrir að vera dugleg þjóð og má nefna sem dæmi að orðið “duglegur” er ekki til í rómönskum málum eins og ítölsku og frönsku. Ef eitthvað er þá ... Lesa »

Heitavatnslaust í Lundarhverfi á morgun

Heita vatnið verður tekið af stórum hluta Lundahverfis á morgun fimmtudag frá kl. 8:00 og fram eftir degi vegna viðgerðar á heitavatnslögn í Skógarlundi og vinnu við að fjarlægja ... Lesa »

Veiðimannsins enn leitað

Leitin að minkaveiðimanninum sem féll í Hjaltadalsá í gær hefur enn engan árangur borið. Um 50 manns frá björgunarsveitum í Eyjafirði og Húnavallasýslum hafa leitað í alla nótt. Nú ... Lesa »

Enn leitað í Hjaltadalsá

Á sjöunda tug björgunarsveitamanna er við leit í og við Hjaltadalsá þar sem minkaveiðimanns er saknað eftir að hann féll í ána í dag. Verið er að kalla út björgunarsveitir á ... Lesa »

Kynning á jógakennaranámi

Fimmtudaginn 13. júní kl. 18 heldur Guðrún Darshan jógakennari og hómópati kynningu á jógakennaranámi í Kundalini Jóga í Orkulundi á Akureyri. Þar fer Guðrún yfir jógakennaranámið ... Lesa »

Leitað að veiðimanni í Hjaltadalsá

Björgunarsveitir frá Blönduósi að Siglufirði hafa verið kallaðar út til leitar að minkaveiðimanni er féll í Hjaltadalsá í Hjaltadal fyrr í dag. Hvarf hann sjónum veiðifélaga síns ... Lesa »

Hús vikunnar: Gamli Barnaskólinn, Hafnarstræti 53

Síðast tók ég fyrir hinar öldnu stórbyggingar Menntaskólans á Akureyri á brún Brekkunnar, Gamla Skóla og Fjósið en nú er það önnur merk skólabygging neðan Brekkunnar, Gamli ... Lesa »

Geðverndarfélag Akureyrar skorar á Kristján Þór

Stjórn Geðverndarfélags Akureyrar og nágrennis skorar á heilbrigðisráðherra að finna án tafar bráðabirgðalausn á neyðarástandi í geðþjónustu barna og unglinga á Norður- og ... Lesa »

Fasaninn með lögheimili í Norðurgötu

„Hann slapp út hjá strákunum hérna á fimmtudagskvöldið,“ sagði Sigurvin "Fíllinn" Jónsson, eigandi fasanans sem flestir fréttamiðlar landsins sögðu frá í gær að hefði sést í ... Lesa »

Skoða meira