Stjórn Geðverndarfélags Akureyrar og nágrennis skorar á heilbrigðisráðherra að finna án tafar bráðabirgðalausn á neyðarástandi í geðþjónustu barna og unglinga á Norður- og Austurlandi.
„Eftir uppsögn barna- og unglingageðlæknis svæðisins er núverandi fyrirkomulag algjörlega óboðlegt. Barna- og unglingageðdeildin í Reykjavík (BUGL) annaði vart álaginu fyrir. Því setur þessi viðbót þjónustuna á landsvísu í uppnám,“ segir í áskoruninni.
Neyðarástand á fjölda heimila
Fram kemur að samkvæmt ársskýrslu FSA 2012 þjónaði barna- og unglingageðdeildin á Norður- og Austurlandi 504 einstaklingum og fjölskyldum þeirra. „Með niðurfellingu þessarar geðþjónustu skapast algjört neyðarástand á fjölda heimila sem ekki sér fyrir endann á. Þjáningin er ekki einungis bundin við börnin og unglingana sjálfa heldur eru aðstandendur einnig að örmagnast. Með hverjum deginum sem líður án þess að lausn sé í sjónmáli stigmagnast vandinn og álagið getur haft varanlegar afleiðingar fyrir heilsu aðstandenda,“ segir í ályktuninni.
„Íbúar svæðisins treysta á ráðherrann að bregðast skjótt við þessu neyðarkalli“.