Tjaldapar hefur sl. 15 ár haldið til á þaki Háskólans á Akureyri og nú spókar parið sig ásamt ungum sínum í grasinu við skólann.
Á vef Háskólans er eftirfarandi frásögn og myndir:
Að venju gleður tjaldurinn starfsfólk Háskólans á Akureyri. Árleg heimsókn og sumardvöl tjaldapars háskólans stendur nú yfir og í fyrstu héldu menn að einungis tveir ungar hefðu komið úr eggi að þessu sinni. Laugardaginn 15. júní, sama dag og brautskráning fór fram við HA, sást til unga sem hafði látið sig vaða niður af þakinu og var með öðru foreldri sínu í ormaleit í runnabeði á meðan annar sást kúra sig enn uppi á þaki. En annað koma á daginn, því það eru þrír ungar sem fylgja foreldrum sínum um lóðir háskólans og náðist þessi mynd af fjölskyldunni við kennslustund í ætisleit.
Eitthvað fældust nú greyin á meðan starfsfólk E-húss fylgdist með fjölskyldunni út um gluggann og náðist markaðs- og kynningarstjóri á mynd þar sem hún hljóp um með myndavél. Þrátt fyrir að vera í nokkurs konar felubúningi urðu fuglarnir hennar varir og spöruðu ekki varúðarköllin.
Parið byrjaði búskap á þakinu fyrir rúmum 15 árum og fylgist starfsfólk jafnan spennt með þegar foreldrarnir útskrifa ungviðið um mitt sumar, ýta þeim fram af þakinu og út í hinn stóra heim. Tjaldurinn heldur sig yfirleitt nálægt sjó, enda vaðfugl en hann fúlsar þó ekki við hagfelldum aðstæðum inn til landsins á borð við húsþakið á Háskólanum á Akureyri. Tjaldurinn er einkvænisfugl og getur orðið meira en þrjátíu ára gamall. Það er því aldrei að vita hversu lengi parið mun sækja háskólann heim, nema einhver unganna taki við og viðhaldi hefðinni.
Fleiri myndir má sjá á vef Háskólans



