Tveir yfirmenn hjá Akureyarbæ hafa verið teknir ölvaðir við akstur með skömmu millibili að því er tvær ótengdar heimildir innan bæjarkerfisins staðhæfa. Annar yfirmaðurinn hefur leitað sér aðstoðar og er í meðferð, blaðinu er ekki kunnugt um afleiðingar hins málsins. Er því haldið fram að í öðru tilvikinu a.m.k. hafi viðkomandi yfirmaður verið í vinnunni og á bíl í eigu Akureyrarbæjar þegar lögreglan tók hann, grunaðan um ölvun. Annar heimildarmanna blaðsins segist líta á þetta sem svartan blett á stjórnsýslunni. Mikilvægt sé að við verði brugðist með tilheyrandi hætti, enda stofni ölvunarakstur mannslífum í hættu.
Blaðið sendi bæjarstjóranum á Akureyri, Eiríki Birni Björgvinssyni, fyrirspurn vegna málsins. Þar var m.a. spurt um ábyrgð yfirmanna sem fyrirmynda og spurt um viðurlög við slíkum dómgreindarbresti. Í svarbréfi bæjarstjóra segir að ekki sé hægt að veita upplýsingar um einstök starfsmannamál innan bæjarins.
„Aftur á móti get ég bent á að samkvæmt ákvæðum flestra kjarasamninga og mannauðsstefnu bæjarins er ölvun í starfi tilefni til áminningar. Ástand eitt nægir til að fara í áminningarferli. Komi slík dæmi upp er gripið til viðeigandi aðgerða,“ segir í bréfi frá bæjarstjóra.
-BÞ























