Sú leynd sem ríkir yfir ákvörðun rektors Háskólans á Akureyri hver verði ráðinn deildarforseti Hug- og félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri er túlkuð sem svo að Ólína Þorvarðardóttir sé ólíklegri en aðrir til að fá stöðuna. Starfsmenn Háskólans og aðrir sem Akureyri vikublað hefur rætt við telja að ef rektor hefði ákveðið að ráða Ólínu hefði sú ákvörðun lekið út eða verið kynnt strax að loknum fundi rektors, Stefáns B. Sigurðssonar, með háskólaráði í gær.
Enn ekki búið að upplýsa umsækjendur
Samkvæmt upplýsingum blaðsins bendir margt til að ekki sé enn búið að ræða við þá þrjá sem sóttu um stöðuna fyrir hjálfu ári. Þeir voru Rögnvaldur Ingþórsson, Sigrún Stefánsdóttir og Ólína Þorvarðardóttir. Málið vekur m.a. athygli stjórnsýslufræðinga en margir töldu erfitt fyrir rektor að líta framhjá því að Ólína varð hlutskörpust í kosningu meðal starfsmanna sviðsins. Síðan hefur orðið mikil atburðarás og dregist úr hömlu að skipa í stöðuna. Samsæriskenningar hafa heyrst líkt eins og t.a.m. hafa komið fram í ummælakerfi akureyrivikublad.is að gagnrýni Ólínu á sjávarútvegsmál eða aðrar pólitískar flækjur kunni að skýra hve rektor hafi gengið treglega að taka ákvörðun. Á hinn bóginn hefur verið gagnrýnt að stjórnmálamenn eigi oft erfitt með að fá störf að lokinni þingmennsku og því hafi margir fagnað þegar Ólína varð hlutskörpust í starfsmannavalinu og allt stefndi í að henni gæfist kostur á nýjum og ópólitískum vettvangi.
Læti fram undan?
Fari svo að gengið verði framhjá Ólínu er ólíklegt að hún muni láta það yfir sig ganga án athugasemda. Sumir spá lögsókn. Ólína er með mikla stjórnunarreynslu og rannsóknavirkni að baki, hún hefur skrifað ritrýndar greinar í viðurkennd fræðirit á hennar sviði og síðast en ekki síst er hún sá umsækjandi sem sigraði í kosningu fræðasviðsins fyrr í sumar að undangengnum kynningarfundum með öllum umsækjendum. Heimildir innan úr Háskólanum á Akureyri segja að Ólína hafi komið sumum á óvart og unnið hug og hjörtu meirihluta þeirra starfsmanna sviðsins sem sóttu kynningarfundinn með henni. Ekki var þó fyrr búið að kjósa en nafnlaus heimildarmaður kom fram í héraðsfréttablaðinu Vikudegi og sagði skoðanir mjög skiptar og kurr inni í deildinni ef Ólína yrði ráðin. Þetta var borið til baka af talsmanni deildarinnar í fréttum Ríkisútvarpsins en síðan hefur málið verið í hnút.
Ánægja með Sigrúnu
Sigrún Stefánsdóttir, fyrrum dagskrárstjóri Rúv, hefur kennt um árabil innan fjölmiðlafræðideildar Háskólans á Akureyri. Hún hefur notið virðingar og er sögð ánægja með hennar störf. Forseti sinnir ekki kennsluskyldu en hermt er innan skólans að margir yrðu vegna góðra kynna við Sigrúnu miður sín ef Sigrún verður ekki skipuð. Það er sagt hafa orðið henni metnaðarlegt högg þegar hún hlaut færri atkvæði í fyrstu kosningu meðal starfsmanna en bæði Ólína og Rögnvaldur Ingþórsson heimspekingur. Rögnvaldur er ekki mikið kynntur innan skólans en rektor hefur skýrt Akureyri vikublaði frá því að hann hafi leitað lagalegs álits á því hvort honum sé stætt að ráða Rögnvald vegna hugsanlegs vanhæfis, tengt fjölskyldu eiginkonu rektors. Er rektori samkvæmt álitinu stætt á að ráða Rögnvald.
Gengið þvert gegn sviðsfundi
Nefnt er sérstaklega í umræðu um hitann í málinu að sviðsfundur lét sér ekki nægja að vísa til kosninganiðurstöðunnar heldur mælti formlega með Ólínu í bréfi til rektors. Það þýðir að ef hún verður ekki ráðin er verið að ganga þvert gegn niðurstöðu sviðsfundar hug- og félagsvísindasviðs HA. Tíundað er í reglum um stjórnskipan hug- og félagsvísindadeildar Háskólans á Akureyri hvernig umsækjendur skuli metnir. Ráðningarferillinn var auglýstur á sínum tíma, en atburðarásin undanfarnar vikur er löngu komin út fyrir þann feril.
Heimildarmenn blaðsins segja að með því að blanda ráðningarstofu í málið eins og ljóst varð fyrir nokkrum vikum, í því ferli þegar rektor frestaði ítrekað að taka ákvörðun, hafi háskólinn farið að meta allt aðra þætti en þá sem lög og reglur kveða á um. Það sé umhugsunarefni fyrir háskólastarfsmenn almennt - því þeir eigi að geta treyst því að menntun þeirra, rannsóknavirkni og starfsreynsla sé það sem einkum sé tekið til skoðunar. Aðrir matskenndir þættir séu málinu óviðkomandi sé litið til laganna og kunni matsbundin túlkun að veikja faglega stöðu umsækjenda og blása byr undir vængi persónupólitískra ráðninga og geðþóttaráðninga.
Risavaxið klúður?
Sjálfur hefur rektor sagt í samtölum við fjölmiðla að enn kunni að dragast í tvo sólarhringa að upplýst verði hver fái stöðuna. Stöðu sem flestum ber saman um að búi yfir litlum völdum utan daglegrar starfsemi sviðsins. Aðeins átti að ráða til tveggja ára og hálft ár síðan staðan var auglýst – „…en samt hefur málið orðið risavaxið klúður og það mun að líkindum draga dilk á eftir sér, burtséð frá því hver fær stöðuna,“ segir einn heimildarmanna blaðsins.
-Björn Þorláksson


