Ólína Þorvarðardóttir hefur sent Akureyri vikublaði athugasemd þar sem hún segir rektor Háskólans á Akureyri fara með rangt mál. Í frétt sem blaðið birti sagði Stefán B. Sigurðsson rektor HA að „bæði niðurstaða dómnefndar og skýrsla ráðningarstofunnar” hafi verið „mjög skýrar” um það að Sigrún væri hæfasti umsækjandinn um stöðu sviðsforseta hug- og félagsvísindasviðs.
Ólína segir ekkert þessu líkt koma fram í hæfnisdómi, heldur segi: „Niðurstaða dómnefndar er sú að allir fimm umsækjendur … fullnægi lágmarkskröfum til að gegna auglýstri stöðu forseta hug- og félagsvísindasviðs; en Ólína og Sigrún eru með mesta reynslu í krefjandi störfum við stjórnun og rekstur.”
Þá sé heldur ekki rétt að niðurstaða ráðningarstofunnar hafi verið „mjög skýr” varðandi þetta, vart megi milli sjá í umsögnum hvor sé hæfari að mati Capacent. Um Ólínu segi: „Ólína hefur miklar forsendur til þess að sinna þessu starfi. Hún er með góða menntun, hefur reynslu af stjórnun, og þekkir til háskólasamfélagsins. Hún hefur tekið þátt í uppbyggingu m.a. innan háskóla, þó sú reynsla sé ekki endilega reynsla stjórnandans. Ólína sér marga möguleika fyrir Háskólann á Akureyri, og hefur áhuga og vilja til að vera í liðsheild sem eflir og styrkir skólann. Ólína er mjög vel máli farin samkvæmt því sem heyra mátti í viðtalinu. Þá eru gögn hennar vel upp sett og textinn skýr. Í umsögnum kom einnig fram að hún væri mjög fær í því að tjá sig, noti vandað málfar og sé með betri ræðumönnum.“
Ólína segir að Capacent hafi mælt með Sigrúnu á grundvelli „meðalvægi einkunnargjafar” fyrir frammistöðu í viðtölum. Hafi munað einu stigi af tólf í milli hennar og Sigrúnar Stefánsdóttur.
„Þetta er nú allur „skýrleikinn” í þessu. Lögum samkvæmt á dómnefndarálit og niðurstaða fræðasviðsins að vega þyngst, álit ráðningarstofu er ekki lögboðið. Hefði verið farið að lögum er ég ótvírætt hæfasti umsækjandinn,“ segir Ólína.
Hún bætir við: „Ég efast þó ekki um hæfni Sigrúnar til þess að gegna starfinu og vona að henni farnist vel í því. En það breytir því ekki að rangt var staðið að ráðningunni.”
-BÞ


























