Næstkomandi mánudag, eftir tvo daga, verður tekin ákvörðun um hvort Ólína Þorvarðardóttir, Sigrún Stefánsdóttir eða Rögnvaldur Ingþórsson fá stöðu sviðsforseta við hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Skipað er til tveggja ára. Ólína varð hlutskörpust í vali kennara innan deildarinnar en aðeins eitt atkvæði skildi milli hennar og Rögnvaldar. Sigrún Stefánsdóttir, sem áður veitti dagskrárdeild Rúv dforstöðu, fékk fæst atkvæði kennara deildarinnar en þykir eigi að síður koma vel til greina sem sviðsforseti. Mikill titringur hefur skapast vegna málsins og segja heimildarmenn, kunnugir málavöxtum, að ákvörðun rektors muni alltaf verða umdeild, hver sem hún verður.
Fékk sérfræðiálit til að fá svör um hæfi
Rektor skólans, Stefán B. Sigurðsson, segir í svarbréfi við fyrirspurn frá Akureyri vikublaði vegna orðróms um að hann sé vanhæfur til að ráða Rögnvald vegna tengsla, að hið rétta í málinu sé að hann hafi engin persónuleg tengsl við umsækjandann Rögnvald Ingþórsson. „Eiginkona mín til 34 ára var gift föður Rögnvaldar á árunum 1973 til 1978 og var því stjúpmóðir hans þessi ár. Þar hafa ekki verið nein tengsl síðan. Þetta er bakgrunnur þessara sögusagna. En til að hafa þetta á hreinu var ákveðið að fá álit sérfræðings í stjórnsýslurétti á þessu.“
Að öðru leyti er ráðningamálið í vinnslu hjá háskólaráði og segir rektor ekki æskilegt að tjá sig mikið um það frekar á vinnslustiginu.
Tengingar Sigrúnar
Sigrún Stefánsdóttir hefur tengingar inn í Háskólann á Akureyri þar sem hún hefur kennt þar árum saman. Segja heimildarmenn að ekki sé ólíklegt að hún verði skipuð en vonlaust sé að spá fyrir um niðurstöðuna fyrr en hún birtist. Hvort sem Sigrún eða Rögnvaldur hrepptu hnossið myndi Ólínu Þorvarðardóttur þykja það óviðunandi niðurstaða í kjölfar fyrri afgreiðslu. Hún hefur lýst óánægju og undrun með að atkvæðagreiðslan meðal kennara hafi ekki verið látin ráða.
Persónuleikinn brotinn til mergjar
Í færslu á Facebook í dag lýsir Ólína að morguninn hafi farið í persónuleikapróf vegna umsóknarinnar um forsetastöðuna í HA. „Já, nú er búið að blanda ráðningarstofu í málið og ekki dugar að leggja fram doktorsprófið sitt, rannsóknirnar, kennslureynsluna og starfsferilinn - hvað þá hæfnisdóm sérskipaðrar dómnefndar eða meðmæli fræðasviðsins sem allt liggur fyrir eins og lög kveða á um. Nebb, nú skal sjálfur persónuleikinn brotinn til mergjar … og þar gefur nú á að líta,“ skrifar Ólína.
Ólínu getur þess einnig hve lengi ráðningarferlið hafi staðið. „Annars hefur þetta ráðningarferli nú staðið í 5 mánuði - það samsvarar næstum fjórðungi ráðningartímans sem er tvö ár.“
-BÞ





