Tríó Sunnu Gunnlaugs heldur tónleika í Hofi á morgun, miðvikudaginn 2. október. Nýútkominn diskur Sunnu sem ber heitið Distilled fær nú hverja glimrandi umfjöllun á fætur annari erlendis og Jazzgagnrýnandi Rhapsody valdi Distilled sem einn af topp 10 diskum september mánaðar. Diskurinn fékk einnig nýlega umfjöllun hjá London Jazz News sem segir Sunnu vera „sérlega smekklegan píanista“ og diskinn vera „ferskan og óaðfinnanlega fram settan af þéttu tríói, stútfullu af hugmyndum“. Jazznytt í Noregi mælir með disknum í nýjasta tölublaði sínu og Jazz Japan gefur honum einnig frábæra dóma og segir „stemningu diskins ná hæðum sem einungis topp-tónlist nær.“
Tríóið fagnar nú útkomu disksins með tónleikum víða um land og verða í Hofi 2 október og hefjast tónleikarnir kl 20:00. Tríóið samanstendur af Sunnu Gunnlaugs á píanó, Þorgrími Jónssyni á bassa og Scott McLemore á trommur.
Hér má hlusta á eitt lag af diskinum.
-SBS





