Rektor Háskólans á Akureyri, Stefán B. Sigurðsson, frestaði í gær á fundi Hákólaráðs skipun nýs sviðsforseta hjá hug-og félagsvísindasviði Háskólans. Rektori ber að leggja mat sitt undir ráðið samkvæmt lögum en samkvæmt upplýsingum Akureyrar vikublaðs þóttu ekki forsendur á fundinum í gær til að taka ákvörðun um ráðningu. Fylgir sögunni að engum umsækjanda hafi enn verið hafnað.
Ólína Þorvarðardóttir, fyrrum þingmaður, fékk flest atkvæði umsækjenda meðal starfsmanna sviðsins í kosningu. Héraðsfréttablaðið Vikudagur hefur haft eftir nafnlausum heimildarmanni að kurr sé meðal starfsmanna sviðsins vegna þróunar mála og upplýsingabrests í tengslum við kosninguna en sá kurr hefur verið borið til baka af fráfarandi forseta sviðsins.
Sigrún Stefánsdóttir, fyrrum dagskrárstjóri Rúv var á meðal umsækjenda og kom það sumum starfsmanna á óvart að hún skyldi detta út strax í fyrri hluta kosninganna meðal starfsmanna. Aðeins eitt atkvæði skildi að Ólínu og Rögnvald Ingþórsson í úrslitakosningu. Ólína fékk 20 en Rögnvaldur 19. Nokkrir seðlar voru auðir.
Næsti fundur Háskólaráðs verður 30. sept og er búist við að þá verði ráðning nýs sviðsforseta gerð opinber.
-BÞ







