Akureyringurinn Pálmi Gunnarsson sló gjörsamlega í gegn á yfirlitstónleikum sem hann hélt í Eldborgarsal Hörpu sl. helgi. Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið ákveðið að halda aukatónleika.
Pálmi lék lög líkt og „Þorparann“, „Hvers vegna varstu ekki kyrr?“ og „Þitt fyrsta bros“. Sérstakir gestir á tónleikunum voru Magnús Eiríksson og Ellen Kristjánsdóttir, samstarfsmenn úr Mannakornum til fjölda ára.
„Ég átti einstaklega ánægjulega kvöldstund í Eldborg, með fullum sal af frábærum tónleikagestum og eðalbandi. Gæti ekki verið ánægðari,“ segir Pálmi í samtali við blaðið.
Einnig er komin út þreföld plata á vegum Senu sem hefur að geyma 57 lög frá ferli Pálma og ber hún titilinn „Þorparinn“.
Pálmi segir á facebook síðu sinni að hann sé þakklátur yfir móttökunum. Nóg er að gera nú um stundir, því þessa dagana kemur einnig út veiðibók eftir kappann.
-BÞ





