Heyrst hefur að klaufagangur í heilbrigðisráðuneytinu í tíð Ögmundar Jónassonar hafi að nokkru orðið til þess að Þorvaldur Ingvarsson, fyrrum lækningaforstjóri FSA, hafi ekki komið til greina sem ný forstjóri FSA. Ánægja ríkir með að Bjarni S. Jónasson hafi verið skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri en Þorvaldur Ingvarsson hafði á undan Bjarna starfað sem forstjóri um tíma og sóttist eftir brauðinu. Þegar ljóst virtist að Halldór Jónsson fv. forstjóri sem fékk að lokum lengra frí en að var stefnt og kom svo aldrei til baka fluttist Þorvaldur búferlum og sagði skilið við starfsvettvang FSA. Áður hafði hann formlega sótt um stöðu Halldórs ásamt fleirum í kjölfar auglýsingar en allir drógu þá umsóknir til baka vegna mála sem aldrei hafa verið að fullu skýrð. Hefur heyrst að klaufagangur í ráðuneytinu fyrir tíð Kristjáns Þórs Júlíussonar hafi verið mikill í þessu máli en persónuleg samstarfsvandræði eru sögð hafa verið hluti af fyrrum stjórnunarvanda FSA. Vonast nú starfsmenn eftir friði, því þrátt fyrir óánægju innanhúss eru notendur þjónustu spítalans jafnan mjög sáttir samkvæmt könnunum…
Heyrst hefur að ef Björn Valur Gíslason fengi kosningu sem bæjarfulltrúi á Akureyri, fari svo að BVG, bjóði sig fram, myndi það e.t.v. lyfta upp bæjarstjórnarfundunum sem N4 sýnir í sjónvarpi, en mörgum þykir dauflegt á fundunum og minna um gagnrýni en þyrfti að vera, enda orki öll stjórnsýsla tvímælis á hvaða tíma sem er, ekki síst niðurskurðar- og aðhaldstímum. Björn Valur hefur aldrei þótt hræddur við að „taka slaginn“ og hefur heyrst að eflaust yrði engin breyting á því í bæjarstjórn Akureyrar frá þingstörfum hans…







