Söngkonurnar Sigrún Stella, Alma Rut og Maja Eir halda saman tónleika á Græna Hattinum í kvöld, fimmtudaginn 12. september kl. 21:00.
Þær segjast mjög spenntar fyrir því að koma og syngja í sínum gamla heimabæ þar sem þær bjuggu allar árum saman á Akureyri. Með þeim verða Birgir Kárason á bassa og Davíð Sigurgeirsson á gítar. Saman flytja þau frumsamda tónlist í bland við ábreiður.
Sigrún Stella er búsett í Kanada. Lög af sólóplötuhennar Crazy Blue hafa fengið töluverða spilun í útvarpinu. Hún hefur samið tónlist fyrir stuttmyndir og vinsæla sjónvarpsþætti í Kanada og í Bandaríkjunum. Alma Rut lærði söng í Tónlistarskóla FÍH og hefur sungið með mörgum af þekktustu tónlistarmönnum landsins síðastliðin ár. Maja Eir hefur lært í Tónlistarskóla FÍH og Complete Vocal Tecnique. Hún hefur einnig sungið með Gospelkór Akureyrar og kór Lindakirkju síðastliðin ár.
-BÞ







