Að hafa flugvöllinn áfram í Vatnsmýrinni er mál upp á líf og dauða ásamt fleiri atriðum. Hver sveitarstjórnin af annarri hefur lýst yfir stuðningi við það mál og hvatt fóllk til að vera með í undirskriftasöfnun, sem nú er í gangi. Þökk sé Njáli Trausta.
Á bæjarstjórnarfundi 3. september sl.urðu nokkrir bæjarfulltrúar sér til háborinnar skammar með yfirlýsingum sínum þegar það mál kom á dagskrá. Logi Már vill ekki að einn né neinn sé þvingaður með undirskriftasöfnun og í grein í Akureyri vikublaði segist hann sannfærður um að með einbeittri sáttamiðaðri vinnnu sé hægt að tryggja góða lausn.
Logi Már, það er ekkert um að semja, eða voru einhverjir samningar í gangi þegar flokkssystkini þín Katrín Júlíusdóttir þá ráðherra afsalaði í leyfisleysi dágóðri spildu úr Vatnsmýrinni til Dags B. Eggertssonar fyrir hönd borgarinnar og gjörningurinn fór fram í húsnæði Flugfélags Íslands í algjörri óþökk flugfélagsmanna.
Halla Björk var á svipuðum nótum í sínum málflutningi og vill lausn á málinu með fundi bæjarstjórnar og borgarstjórnar. Halla Björk: það er ekki um neitt að semja. Ég vænti þess að þú vitir um bréfið, sem bæjarstjóri sendi skemmtikraftinum Gnarr fyrir mörgum mánuðum en ekkert svar hefur borist. Það er ekki kurteisinni fyrir að fara á þeim bæ.
Síðast en ekki síst kem ég að Guðmundi Baldvini, sem vill samráðsfund. Einu sinni enn segi ég: Það er ekkert um að semja, Guðmundur Baldvin. Og af hverju heldur þú að flokksbróðir þinn ágætur, Höskuldur Þórhallsson formaður umhverfis og skipulagsnefndar, sé að undirbúa frumvarp um að skipulagsvald yfir flugvallarsvæðinu flytjist frá borg til ríkis. Gott hjá þér Höskuldur.
Bókunin, sem bæjarstjórn gerði um málið er ómerkilegt mjálm og bæjarstjórn allri til skammar. Að lokum krefst ég þess að bæjarfulltrúar allir, hver fyrir sig, upplýsi hvort þeir kjósi með flugvellinum í Vatnsmýrinni eða ekki. Það eru nefnilega kosningar í vor og Akureyringar allir eiga heimtingu á að vita hverja þeir eigi að kjósa.
Hjörleifur Hallgríms







