Í umræðunni um framtíð Reykjavíkurflugvallar takast á tvö meginsjónarmið; þeirra sem vilja hann áfram í óbreyttri mynd og hinna sem vilja nota svæðið til að þétta byggð. Báðir hafa nokkuð til síns máls. Sá ósveigjanleiki og heift sem birtist í umræðunni er hins vegar líklegri til að dýpka skotgrafirnar en koma okkur upp úr þeim þannig að sátt náist í málinu. Hættan er að annar aðilinn komi sínum ítrasta vilja fram eftir lögboðnum leikreglum skipulags og völlurinn fari án þess að önnur ásættanleg lausn hafi verið fundin eða að hinn aðilinn fái samúð hjá löggjafanum sem reyni að þvinga fram óbreytt fyrirkomulag vallarins með lagsetningu. Báðir kostir eru slæmir.
Þjóð sem hefur ítrekað á síðustu árum kallað eftir breyttum vinnubrögðum og umræðuhefð er nú á góðri leið að geirnegla gamlan ósið; lykilmál skulu leidd til lykta með vinsældakosningu, slatta af hræðsluáróðri, útúrsnúningum, hvítlygi, einföldunum og stundum örlitlu af handafli.
Það er að sjálfsögðu gríðarlega mikilvægt að aðgengi allra landsmanna að höfuðborginni sé gott og sjúkraflutningar eins skilvirkir og nokkur er kostur. Það er hins vegar líka bráðnauðsynlegt að Reykjavík nái að styrkjast og þróast til langrar framtíðar.
Af hverju látum við þetta mál ekki vera prófstein á það hvort við getum tekist á við flókin viðfangsefni og leyst þau farsællega án gífuryrða og skætings?
Viðfangsefnið ætti ekki bara að vera að halda aðstöðu til sjúkraflutninga og aðgengi að höfuðborginni óbreyttu heldur að þjónustan verði enn betri. Um leið er það ekki bara hagsmunamál höfuðborgarbúa að borgin þróist í átt að sjálfbærari orkunotkun, heilbrigðari lífsháttum og skemmtilegra mannlífi. Það er heldur ekki einkamál þeirra að Reykjavík verði samkeppnishæf við aðrar borgir álfunnar þannig að okkur takist að halda í ungt og hæfileikaríkt fólk og laða annað til okkar. Í framtíðinni mun vaxandi hluti verðmæta þjóðarinnar verða til í þéttbýli á kostnað hinna hefðbundnu útflutningsgreina. Það er því lykilatriði fyrir þjóðina alla að höfuðborgin þróist á farsælan hátt.
Róum okkur nú aðeins og skoðum alla anga málsins, með frjóum hug, út frá öllum mögulegum hliðum þess og gefum okkur til þess tíma.
Ég er sannfærður um að með markvissri, einbeittri og sáttamiðaðri vinnu þvert á hreppamörk er hægt að tryggja góða lausn fyrir okkur öll.
Logi Már Einarsson
Höfundur er bæjarfulltrúi á Akureyri.





