Um helgina verða fyrstu sýningar leikársins hjá Leikfélagi Akureyrar en í kvöld verður fyrsta sýning af fimm á verki Bjarkar Jakobsdóttur, Blakkát, sem sýnt var í Gaflaraleikhúsinu sl. vetur við góða aðsókn og verður sýnt þar áfram í vetur. Verkið er „sótsvartur gamaleikur,“ eins og Björk orðar það sjálf en hún skrifaði verkið og leikur aðalhlutverkið. Verkið fjallar um konu á miðjum aldri sem vinnur í utanríkisráðuneytinu og vaknar eftir blakkát á hótelherbergi. Hún veit samt að í gær var árshátíð í Hörpu, allt annað er í þoku.
Á laugardagskvöld verður verkið Segðu mér satt sýnt í Rýminu en það verður aðeins þessi eina sýning. Verkið eftir Hávar Sigurjónsson og fjallar um eldri hjón, leikara, sem lokast hafa inni í leikhúsi ásamt fullorðnum syni sínum sem er í hjólastól. „Þau máta sig við ótal hlutverk í uppgjöri við fortíðina, en í meðförum þeirra er hugtakið sannleikur afar loðið. Smátt og smátt missa þau tökin þar til skilin milli „leiks og veruleiks“ mást út og grímulaus grimmdin ríkir. Kynskipti, lygar og fjöldinn allur af morðum í þessu tragíkómíska verki,“ segir í lýsingu.





