Sigurður Þorri Gunnarsson er 24 ára Akureyringur sem útskrifaðist úr fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri vorið 2012 og stundar nú meistaranám í fjölmiðlafræði við háskólann í Sunderland á Englandi. Sigurður gerði sér nýverið lítið fyrir og sigraði í flokki stuttra heimildarþátta í bresku útvarpsverðlaunum, British Public Radio Award. Yfir hundrað þættir voru sendir til keppni í þessum flokki og átti Sigurður tvo af þeim fjórum þáttum sem tilnefndir voru til verðlaunanna.
„Þetta er mikil viðurkenning og ég bjóst alls ekki við því að vera tilnefndur, hvað þá að vinna!,“ segir Sigurður í spjalli við blaðamann. „Dómarinn sem dæmdi flokkinn minn hefur unnið á BBC síðan 1990 m.a. sem stjórnandi og finnst mér ótrúlegt að maður sem hefur séð og heyrt margt skuli finnast mitt efni gott“.
Þátturinn, sem heitir „A Place to Belong“, fjallar um kór hinsegin fólks í norðaustur Bretlandi og segist Sigurður hafa verið að velta fyrir sér hvað dregur fólk saman í söng og hvaða áhrif það hefur á fólk sem tilheyrir minnihluta hópi. „Fólkið sem ég ræddi við var algerlega frábært og ég fékk að heyra margar frábærar sögur. Kórinn er þeirra staður til þess að vera þau sjálf án þess að óttast fordóma. Þetta er staður sem þau geta tilheyrt,“ segir Sigurður og bætir því við að hann reyni að hafa upp á fólki sem ekki færi annars að tala í fjölmiðlum og lítur á það sem áskorun.
Aðspurður um hvað sé framundan segist Sigurður vera að leggja lokahönd á meistaraverkefni sitt og þegar því er lokið kemur hann heim til Akureyrar. „Ég ætla að koma og slaka aðeins á, þetta hefur verið mikil törn en klárlega opnar þessi viðurkenning einhverjar dyr hér í Bretlandi svo ég á eftir að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér.“
Hægt er að hlusta á þættina hans Sigurðar á vefnum radiosiggi.com
-SBS





