KA og Völsungur áttust við í gærkvöldi á Húsavík, þar sem að KA menn fóru með öruggan sigur af hólmi, 6-0. Þrátt fyrir þennan sigur KA-manna, skipti leikurinn engu máli upp á stöðuna í deildinni en KA á engan séns á því að fara upp um deild og Völsungar eru þegar fallnir.
KA hóf markaveisluna strax snemma leiks þegar að Ævar Ingi Jóhannesson skoraði laglegt mark. Danski framherjin Carsten Pedersen tvöfaldaði forystu KA-manna á 19. mínútu og þar við sat í fyrri hálfleik.
Allar flóðgáttir opnuðust í þeim síðari og var það Carsten sem opnaði markareikning þess hálfleiks með mark eftir um það bil korters leik. Næstur í röðinni var Húsvíkingurinn Hallgrímur Mar Steingrímsson, sem nú leikur fyrir KA. Hann skoraði gegn sínum gömlu félögum á 83. mínútu. Á 86. mínútu skoraði síðan Orri Gústafsson fimmta mark KA og loks skoraði Hallgrímur annað mark sitt og sjötta mark KA í uppbótartíma. Lokatölur á Húsavík, 6-0 KA í vil.
Húsvíkingar eru sem fyrr með tvö stig á botni deildarinnar en KA skaust upp í 7. sæti með þessum sigri.





