Björn Valur Gíslason, fyrrum þingmaður VG, segir að hann útloki ekki að bjóða sig fram til bæjarstjórnar í kosningum á Akureyri næsta vor. Hins vegar telji hann það þó ólíklegra en hitt.
Andrea Hjálmsdóttir hefur leitt Vinstri græn á Akureyri allt kjörtímabilið. Hún er eini bæjarfulltrúi VG og mun áfram gefa kost á sér í oddvitasætið samkvæmt upplýsingum blaðsins. Flokkurinn mældist með tvo bæjarfulltrúa þegar Háskólinn á Akureyri gerði könnun veturinn 2011-2012. Ekki er vitað til að nýrri mæling hafði verið gerð á stuðningi við flokkana á Akureyri.
Bæði Andrea og Logi Már Einarsson, fulltrúi Samfylkingar á Akureyri hafa einnig lýst áhuga á hugmynd um hugsanlega sameiningu vinstri aflanna á Akureyri.
-BÞ




