Konan sem björgunarsveit leitaði að á Súlum í dag er fundin og heil á húfi. Konan fannst austan í fjallinu, beint niður af Súlutindum nokkuð frá þeirri leið sem hún hugðist fara. Er talið að hún hafi hrakist af leið undan veðrinu á fjallinu.
Í þetta sinn var það hljóðleitin sem bar árangur, konan heyrði í flautum björgunarmanna og gat gert vart við sig. Hún er köld og hrakin og getur illa gengið. Því þarf að bera hana niður þangað sem fjórhjól komast að, allt að þriggja kílómetra leið.
-SBS




