Björgunarsveitarmenn úr Súlum stöguðu niður tré sem leit út fyrir að gæti gefið sig. Mynd af Facebooksíðu Súlna
Hálka og éljagangur er nú á Víkurskarði og á Öxnadalsheiði eru hálkublettir og snjóþekja en Vegagerðin er nú við mokstur á heiðinni. Vegfarendur geta átt von á hálku og krapa jafnvel niður í byggð og getur verið varasamt að vera á ferðinni nema á vetrardekkjum samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni.
Björgunarsveitir frá Varmahlíð og Sauðárkróki voru kallaðar út um klukkan fimm í morgun til að aðstoða starfsmenn RARIK við að berja ís af raflínum en rólegt hefur verið á Akureyri í nótt, þó brotnaði rúða á heimavist MA vegna foks.
Ekkert hefur verið flogið innanlands en athuga á með flug til og frá Akureyri kl. 11.
Spáð er talsverðri eða mikilli rigningu eða slyddu norðan- og austanlands snjókoma til fjalla. Draga á heldur úr vindi og úrkomu seinnipartinn í dag en til morguns verður norðan 10-15 og dálítil rigning eða slydda.




