Snjóbrettamyndin Never Not sem framleidd er af Nike er af mörgum talin vera ein magnaðasta snjóbrettamynd ársins og þó lengra væri talið. Akureyringurinn Halldór Helgason á langt myndskeið í myndinni þar sem hann sýnir ævintýraleg stökk og þar á meðal eitt þar sem hann stekkur af þaki dekkjaverkstæðis Höldurs við Glerártorg og lendir eftir snúning á þaki Blómabúðarinnar Býflugan og blómið. Þetta magnaða trikk og fleiri frá Halldóri er hægt að sjá í myndbandinu hér að neðan, atriði Halldórs hefjast á 21. mínútu.
-SBS




