Lið Akureyrar keppir við lið Reykjavíkur í fyrsta þætti spurningaþáttarins Útsvars sem fram fer í kvöld. Fyrir hönd Akureyringa keppa þau Arndís Bergsdóttir, Haraldur Egilsson og Sigurður Erlingsson en lið Reykvíkinga sigraði keppnina í fyrra. Þátturinn hefst kl. 20:10
Þetta er sjöunda árið sem keppt er í Útsvari en nýr spurningahöfundur og dómari í keppninni þennan vetur er Stefán Pálsson en þau Þóra Arnórsdóttir og Sigmar Guðmundsson verða sem fyrr í spyrlahlutverkinu. Einhverjar fleiri breytingar verða gerðar á þættinum, t.d. verða liðin ekki lengur látin hlaupa í bjölluspurningunum enda hefur atgangurinn í þeim lið á stundum stefnt heilsu þátttakenda og sviðsmyndinni í hættu. Þess í stað verða kynntir inn nýir liðir sem reyna fremur á færni liðanna í að leysa þrautir og tengja saman flókin atriði. Af einstökum nýjum spurningaflokkum má nefna: „Hver er spurningin?“, þar sem keppnisliðin fá að vita svarið en þurfa að átta sig á um hvað er spurt.
Ekki verður látbragðsleikur heldur á dagskránni, í það minnsta ekki fyrri hluta vetrar og á vef RÚV kemur fram að búast megi við því að einstökum atriðum verði skipt út milli umferða. Gert er ráð fyrir að með þessum breytingum verði Útsvarskeppnir vetrarins jafnvel enn meira spennandi en verið hefur.
-SBS







