Nú um helgina, 12.-14. apríl verður haldinn markaður í Baldursnesi 8, húsnæði sem áður hýsti verslunina Europris. „Við erum tvær sem stöndum fyrir markaðinum,“ segir Rakel Bragadóttir, önnur kvennanna sem að markaðinum standa. „Við vorum farnar að finna að þörf væri á að koma á nokkurs konar Kolaporti hér fyrir norðan og vorum svo heppnar að fá þetta stóra og flotta húsnæði leigt. Höfum heyrt að fleiri og fleiri séu að keyra suður til þess að vera í Kolaportinu“.
„Þegar við fórum af stað með þessa hugmynd þá eiginlega grunaði okkur ekki hve þörfin væri mikil hérna og höfum við fengið mjög góðar viðtökur en á milli 60 og 70 aðilar hafa nú þegar skráð sig með sölu. Á markaðinum verður allt milli himins og jarðar til sölu. Bæði nýtt og notað, má þar nefna fatnað, skó, bækur, glervöru, efni, skartgripi og fleira,“ segir Rakel.
Markaðurinn verður opinn föstudag milli kl. 14-18, laugardag 11-18 og sunnudag 13-17. „Það er von okkar að Norðlendingar taki þessu vel og fólk verð duglegt að kíkja við og ef vel gengur höfum við hug á að endurtaka þetta,“ segir Rakel að lokum.


