Þann 12. október stendur Menningarráð Eyþings fyrir Leiðarþingi í Hlíðarbæ í Hörgársveit. Markmið með Leiðarþinginu er að leiða saman fólk og hugmyndir á forsendum sköpunar.
Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, menningarfulltrúi Eyþings segir fólk sem tengist menningarstarfi á starfssvæði Menningarráðsins hafa kallað eftir vettvangi þar sem hægt er að kynnst áhugaverðum hugmyndum og skiptast á skoðunum um menningarmál á svæðinu. „Þingið er liður í að koma á slíkum vettvangi.“
Leiðarþingið hefst á fjölbreyttum erindum þar sem m.a. Karítas H. Gunnarsdóttir, skrifstofustjóri menningarmála í mennta- og menningarmálaráðuneytinu, fjallar um nýja matskýrslu um menningarsamninga landsbyggðarinnar og kallar jafnframt eftir skoðunum þinggesta um hvernig þeir sjái fyrir sér menningarsamninga framtíðarinnar.
Pétur Halldórsson framkvæmdastjóri Barokksmiðju Hólastiftis hefur komið að fjölmörgum menningarverkefnum á svæðinu og mun hann miðla með þinggestum því hvernig hann hugsar út fyrir kassann þegar kemur að þróun hugmynda.
Einnig flytja erindi Guðmundur Oddur Magnússon prófessor við Listaháskóla Íslands, sem fjallar um hvernig hugmyndir verða að veruleika og Skúli Sæland, formaður menningarklasans Upplit sem starfræktur er í uppsveitum Árnessýslu, sem kynnir hugmyndafræðina að baki Upplits og segir frá fyrstu árum starfseminnar.
Að erindum loknum mun Þórgnýr Dýrfjörð stýra hraðstefnumóti hugmynda, þar gefst þinggestum tækifæri til að miðla hugmyndum, leita eftir samstarfsaðilum og kynnast fjölbreyttum verkefnum. Að lokum taka gestir þátt í vinnustofu þar sem velt verður upp spurningum um nútíð og framtíð menningarmála á svæðinu.
Þingið er þátttakendum að kostnaðarlausu en óskað er eftir að þátttakendur skrá sig til leiks á netfangiðmenning@eything.is. Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi Eyþings í síma 464 9935
-SBS































