Lof fær SVA, segir ungur maður sem hafði samband við blaðið. „Ég vil hrósa vagnstjórum þar fyrir kurteisi og tillitssemi í framkomu. Einnig er um að gera að lýsa ánægju með að ferðirnar með vögununum séu gjaldfrjálsar,“ segir maðurinn…
Lof fær AFGREIÐSLUFÓLK í Byko á Akureyri, segir maður sem sendi blaðinu bréf. „Í búðinni er afskaplega lítill lager og oft ekki til það sem að vantar. Starfsfólkið segir að ekki sé hlustað á þau þegar þau segja eitthvað vanta. En þau redduðu varahlutnum sem mig vantaði fyrir mig sjálf. Frábær þjónusta, sérstaklega hjá reyndari starfsmönnunum,“ skrifar maðurinn…
Lof fær lögreglan á Akureyri, mátti lesa á facebook nýverið. „Peningaveskið mitt var tekið ófrjálsri hendi og fannst á víðavangi. Búið að taka 17 þús. úr veskinu. Þökk sé eftirlitsmyndavélum þá fannst viðkomandi og ég sæki peningana á stöðina á morgun. Alltaf gott að geta treyst á lögguna,“ segir ónefndur aðili og má taka undir það…
Last fær tæknideild Ríkisútvarpsins fyrir að rústa Útsvarsþætti síðustu viku en þá lá mikið undir. Lið Akureyrar atti kappi við Reykjavík og laut í lægra haldi. Enginn veit þó hvernig úrslitin hefðu orðið ef rafrænar þrautir keppenda hefðu getið farið fram á undan „stóru“ spurningunum, segir bæjarbúi sem skrifaði blaðinu bréf. Bæjarbúinn leggur til að Akureyringar fái annað tækifæri – en sennilega býðst það þó ekki fyrr en næsta haust…
Last fá þeir sem vilja fórna menningu og listum „á altari auðhyggjuog óskapandi lífs“ segir karl sem varar við sölu á eignum hins opinbera og einkavæðingu opinberrar starfsemi. Sami karl varar við sölu Akureyrarbæjar á Deiglunni og Rými. Hann segir að fyrst þurfi að finna leiðir til að nýta húsin betur áður en „drastískar“ leiðir séu farnar. Mun gáfulegra væri að selja og einkavæða eitthvað af öllum íþróttahúsum bæjarins, enda eigi sú uppbygging drjúgan þátt í fjárhagsvanda Akureyrarbæjar, bætir karlinn við…

