Kynjafræði er búin að eyðileggja líf mitt

Helga Guðrún Kristjánsdóttir

Helga Guðrún Kristjánsdóttir

Klámvæðing kallast það þegar klám læðir sér inn í daglegt líf okkar án þess að við tökum eftir því. Það er hægt að rökræða það fram og til baka hvort það sé í raun eitthvað til sem heitir klámvæðing en að mínu mati þá ætti ekki að vera neinn efi um það. Klám er ekki lengur það sem það var. Með tilkomu internetsins er klám búið að þróast og orðið miklu öflugra en við gerum okkur grein fyrir. Með tímanum erum við líka orðin ónæm fyrir þessu. Þetta er bara eins og það er og hví ættum við eitthvað að vera að æsa okkur yfir þessu? Ég gerði mér til dæmis ekki fyllilega grein fyrir skaðsemi kláms og klámvæðingar fyrr en ég fékk markvissa fræðslu í kynjafræði.

Í gegnum önnina þá opnuðust augu mín fyrir því hvað klám umkringir okkur og hefur gegnumsýrt hegðun okkar og viðhorf. Frá því að við erum börn verðum við fyrir stanslausu áreiti af hálfu kláms. Vegna þess að þetta er allstaðar. Þetta er í auglýsingum, tónlistarmyndböndum og kvikmyndum. Eins og Gail Dines sagði í fyrirlestri sem hún hélt í Háskóla Íslands 2012, þá er ekkert til lengur sem heitir softcore porn eða „mjúkt“ klám, þetta heitir í dag poppmenning. Það sést greinilega á tónlistarmyndböndum poppstjarnanna í dag. Rihanna er afbragðs dæmi um það. Í einu af hennar nýjustu tónlistarmyndböndum þá er hún auðvitað fáklædd og eru danshreyfingarnar vægast sagt tvíræðar. Hún situr öfug í stól og riðlast á honum. Hvað það hefur með lagið að gera er ég ekki alveg viss um. Þetta virðist snúast meira um að glenna sig og sýna á sér rassinn heldur en einhverja sönghæfileika. Listform sem áður gekk út á það að koma frá sér einhverjum skilaboðum er núna orðið keppni um hver getur sýnt sem mest hold án þess að það tæknilega teljist klám. Þetta eru skýr og greinileg merki klámvæðingar.

rihanna

En klámvæðingu gætir ekki aðeins hjá poppstjörnunum heldur sjáum við þetta einnig í hegðun barna í íslensku samfélagi. Tökum sem dæmi facebook myndir stúlkna. Það er ekkert eðlilegt við stellingarnar sem kornungar stúlkur setja sig í á myndum. Þetta er lærð hegðun. Að fetta sig og bretta; rassinn og brjóstin út, maginn inn og myndavélin á helst að vísa niður til að sýna sem mesta skoru. Það að setja stút á varirnar er líka gríðarlega vinsælt, að virka fullorðinsleg en samt sem áður barnaleg og sakleysisleg á sama tíma. Það er engin tilviljun að þetta séu stellingar sem við sjáum í auglýsingum, tímaritum og tónlistarmyndböndum. Samfélagið er að gera kröfur til yngri og yngri barna að fullorðnast sem fyrst. Fatnaður þeirra verður fullorðinslegri og fullorðinslegri. Tólf ára stúlkur í magabolum og mínipilsum sem alla sína ævi hafa leikið með dúkkur í svipuðum fatnaði. Krakkar fá þessi skilaboð um hvernig þau eiga að líta út og hvernig þau eiga að hegða sér frá blautu barnsbeini.

Að halda að klámvæðingin hafi engin áhrif á okkar daglega líf hérna á litla Íslandi er barnaskapur. Við segjum við litlu stúlkurnar okkar að strákar sem stríða séu skotnir í þeim og svo fordæmir samfélagið konur sem skilja ekki við ofbeldisfulla eiginmenn. Samfélagið hyllir karlmenn fyrir að vera kvennagull vegna þess að það er karlmannlegt að sofa hjá mörgum konum en við köllum ekki konur kallagull. Við köllum þær lauslátar. Okkur er kennt að aðeins karlmenn vilja stunda kynlíf, að það sé það eina sem þeir hugsa um á meðan konur geri það bara af skyldurækni. Ótal grínþættir nota þetta sem brandara, karlinn gerir eitthvað af sér og þá segir konan „ekkert kynlíf fyrir þig“. Kynlíf er vopn í höndum okkar kvenna sem við notum gegn karlmönnum.

Vandamálið liggur í því að ungir krakkar eða unglingar fá kynfræðslu í gegnum klámið. Börn eru skuggalega ung þegar þau sjá klám í fyrsta skiptið. Er hægt að ætlast til að þau geri sér grein fyrir því að klám gefi ekki rétta mynd af kynlífi?

Undanfarin ár hafa svo lýtaaðgerðir á kynfærum kvenna aukist og fyrir því er oft engin læknisfræðileg ástæða, sbr. umfjöllun Ebbu Margrétar Magnúsdóttur fæðinga- og kvensjúkdómalæknis 8. mars sl. Unglingsstúlkur og konur eru að upplifa að það sé eitthvað að þeim og kynfæri þeirra séu ljót vegna þess að í klámi eru aðeins sýnd kynfæri með ákveðið útlit. Allt annað er ógeðslegt og ljótt. Auðvitað þarf líka að laga lafandi brjóst eftir brjóstagjöf. Það gengur ekki að það sjáist á líkamanum að konan sé búin að ganga í gegnum meðgöngu og barnsburð.

En klámvæðingin bitnar ekki einungis á konum. Þær eru augljósustu fórnarlömbin en þetta hefur líka neikvæð áhrif á karlmenn. Vegna þess að klám kennir ekki aðeins ákveðna kynferðislega hegðun heldur einnig ákveðna hegðun gagnvart konum. Klám kennir karlmönnum að koma fram á ákveðin hátt og geri þeir það ekki eru þeir minni karlmenn fyrir vikið. Þetta er skaðlegt fyrir samfélagið í heild og við ættum að sporna við þessu en ekki bara taka þessu sem eðlilegri þróun. Við þurfum ekkert að sætta okkur við þetta.

Kynjafræði hefur opnað augu mín fyrir þessu og gert það að verkum að ég er mun meðvitaðri um samfélagið í heild. Kynjafræði hefur eyðilagt líf mitt og gert það betra.

Helga Guðrún Kristjánsdóttir
Höfundur er nemandi í kynjafræði við Verkmenntaskólann á Akureyri.

Grétar Þór Eyþórsson. Í raun og veru frétt að reynsluleysi fulltrúa L-listans hafi ekki hamlað brautargengi.

Málið komið á annað stig

Í viðtali við Geir Kristin Aðalsteinsson sem birtist í Akureyri vikublaði 12. janúar 2012 skömmu eftir að stjórn Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar tók ... Lesa »

Njáll Trausti Friðbertsson

Njáll Trausti þiggur þriðja sætið

Njáll Trausti Friðbertsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og flugumferðarstjóri, ætlar að taka þriðja sætið á lista flokksins í ... Lesa »

Bjarnarflagsstöð

Mývetningar skiptast í tvær fylkingar vegna virkjunar

Aðalfundur Veiðifélags Mývatns fór fram í Seli um síðustu helgi. Þar bar Bragi Finnbogason upp ályktun um að Bjarnarflagsvirkjun yrði mótmælt og ... Lesa »

Oddur Helgi Halldórsson

Óhugsaðar bráðaaðgerðir

13 starfsmönnum Hvamms í Hrísey var sagt upp störfum í gær og taka þær gildi um næstu mánaðamót. Að öllu óbreyttu missa starfsmennirnir vinnuna 1. ... Lesa »

Ráðhúsið á Akureyri. Mynd: akureyri.is

Bæjarráð áhyggjufullt yfir atvinnuástandi í Hrísey

Bæjarráð Akureyrarkaupsstaðar hittist á fundi í morgun. Þar var rætt um atvinnumál í Hrísey. Eins og akv.is greindi frá í gær var 13 starfsmönnum sagt ... Lesa »

Efni úr Vaðlaheiði í göngustíg í bænum

Vel gengur að grafa Vaðlaheiðargöng að sögn framkvæmdastjóra ganganna þótt heitt vatn hafi streymt fram sl. sunnudag, 43ja gráðu heitt. Kominn er ... Lesa »

Kringlumýrinni breytt í leiksvið

Fjöldi manns hefur síðustu daga verið að störfum í Kringlumýrinni við gerð sjónvarpsauglýsingar á vegum Republik ehf. Kaupandi auglýsingarinnar fæst ... Lesa »

Hótel Gígur

Íslendingar bak við kaupin

KHG European Hospitality Partners, félag sem bauð hæst eða 384 milljónir króna í eignina Skútustaðaskóla í Mývatnssveit á uppboði í síðustu viku, er ... Lesa »

Björn Þorláksson

Unga og frábæra fólkið okkar

Það hafa verið sönn forréttindi að fylgjast með skrifum ungs fólks síðustu vikur, bæði hér í þessu blaði, á vefnum akureyrivikublad.is sem og í fleiri ... Lesa »

13 sagt upp hjá Hvammi í Hrísey

Útgerðarfélagið Hvammur í Hrísey hefur ákveðið að segja upp öllu starfsfólki sínu í landi frá og með næstu mánaðarmótum. Við fyrirtækið starfa 13 í ... Lesa »

Kristín Aðalsteinsdóttir

Ástandið, hermennirnir og gula rósin

Haustið 1997 var ég á leið til Bristol til ársdvalar en var ekki búin að finna mér húsnæði. Hér voru þá staddir hjá mér gestir, Mary og Gordon Halford ... Lesa »

Innritunargjald á skátamót 54.000kr.

Landsmót skáta er haldið á víxl við Úlfljótsvatn og á Hömrum á Akureyri. Í ár verður landsmótið norðan heiða. Búist er við um 2.000 þátttakendum á ... Lesa »

Verkamenn skoða rétt sinn

Gangnagerðarmenn Ósafls sem vinna við gerð Vaðlaheiðarganga hafa kannað hver réttur sinn er varðandi starfsskilyrði í göngunum. Mikill hiti er við ... Lesa »

Guðrún Veiga

Afrekskonan Guðrún Veiga.

Ég er ekki og hef aldrei verið afrekskona þegar kemur að íþróttum. Svo langt því frá. Ég er alveg þarna á öndverðu meiði við afreksmanneskjuna. Eins ... Lesa »